Fotbolti.net
24.09.26 - 10:38
Elvar Geir Magnússon

Kristall: Ætla að sjá til þess að Freysi dansi ekki í lok tímabils

Kristall í leik með Brann.

Kristall í leik með Brann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kristall Máni Ingason hefur verið að gera góða hluti með norska liðinu Brann og kemur í góðum gír til móts við íslenska landsliðið.

„Ég myndi segja það. Ég hef verið að spila mikið af mínútum, verið að skora mín mörk og leggja upp eitthvað upp líka. Ég myndi segja að ég væri að koma í góðu flæði inn í liðið og inn í þetta verkefni," segir Kristall sem ræddi við Fótbolta.net á hóteli landsliðsins.
„Við komumst áfram í Sambandsdeildinni, það hefur verið meira bras í deildinni. Ég veit ekki hvað það er en við náum ekki upp alveg sömu stemningu og í Evrópu. Það hafa verið meiðslavandræði, meðal annars Sævar Atla sem var loks að koma til baka í síðasta leik. Við þurfum að fá leikmenn til baka og þá erum við með drullusterkt lið."

Skoraði og fékk rautt
Kristall skoraði í 2-1 sigri gegn Bodö/Glimt um síðustu helgi en fékk svo rautt spjald eftir VAR skoðun. Liðsfélagar hans náðu að landa sigrinum þrátt fyrir liðsmuninn og Kristall segir það hafa verið létti.

„Þeir sýndu þvílíkan karakter. Við höfum fengið einhverja gagnrýni fyrir að varnarleikurinn sé ekki nógu góður en ef þú nærð að halda út í 20-30 mínútur tíu gegn Meistaradeildarliði Bodö/Glimt þá ertu að gera eitthvað rétt. Þetta var geggjað."

Hvað með rauða spjaldið, var það réttur dómur?

„Nei, þetta var mjög 'soft'. Hann kemur þarna fyrir mig og ég enda á því að taka hann niður."

Sjáðu mörk Íslendinganna og rauða spjald Kristals í frábærum sigri Brann
TENGT EFNI

Sjáðu mörk Íslendinganna og rauða spjald Kristals í frábærum sigri Brann


Íslendingarnir gera allt fyrir liðið
Auk Kristals eru Sævar Atli Magnússon, Eggert Aron Guðmundsson og Kjartan Már Kjartansson hjá Brann. Íslendingasamfélagið hjá félaginu er að stækka og þéttast.

„Þeir sjá að Íslendingarnir gera allt fyrir liðið og fyrir klúbbinn. Menn eins og Eggert, Sævar, ég og Kjartan núna pottþétt reynum að spila alla leiki þó það sé eitthvað að hrjá okkur. Við reynum að púsla okkur saman til að hjálpa liðinu. Við spilum meiddir og gerum allt fyrir liðið, stuðningsmennirnir sjá það og þá halda þeir með okkur," segir Kristall.

Hann má dansa eins og hann vill
Freyr Alexandersson fékk Kristal til Brann en hann var síðan rekinn frá félaginu og hefur nú rifið Rosenborg rækilega í gang. Rosenborg er í fimmta sæti, fjórum stigum á undan Brann.

„Já því miður, hann er búinn að ná að kveikja aðeins í þessu og það er bara flott fyrir hann. Ég dýrka Freysa og held með honum en vonandi dettur þetta aðeins niður hjá honum svo við náum þessu fjórða sæti, allavega það," segir Kristall.

Freyr hefur fagnað góðum árangri með því að dansa fyrir stuðningsmenn sem eru ánægðir með danssporin. Þetta hefur vakið mikla athygli í Noregi.

„Hann má dansa eins og hann vill. Ég ætla að sjá til þess að Brann endi fyrir ofan Rosenborg. Þetta verður bara stríð um fjórða sætið og vonandi verður hann ekki dansandi í lok tímabils."

Kjartan Már Kjartansson, Eggert Aron Guðmundsson og Kristall Máni Ingason.

Kjartan Már Kjartansson, Eggert Aron Guðmundsson og Kristall Máni Ingason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kristall: Ætla að sjá til þess að Freysi dansi ekki í lok tímabils
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kristall: Ætla að sjá til þess að Freysi dansi ekki í lok tímabils
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kristall: Ætlum að vinna þetta lið og skapa stemningu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.