24.09.26 - 11:28
Kári Snorrason
Krossleggur fingur að Andri haldist heill - „20 marka maður“

Skorað þrjú mörk í Championship-deildinni á tímabilinu.

Mynd: Blackburn

Á að baki 39 A-landsleiki og skorað í þeim tíu mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skorað þrjú mörk í Championship-deildinni á tímabilinu.

Mynd: Blackburn
Tony Mowbray, stjóri Blackburn Rovers, hefur mikla trú á Andra Lucasi Guðjohnsen og segir hann geta verið 20 marka mann í Championship-deildinni.
Andri hefur farið vel af stað með Blackburn á tímabilinu þar sem hann hefur skorað þrjú mörk í sjö leikjum.
„Ég er nokkuð viss um að ég muni hafa rétt fyrir mér. Ef hann spilar nægilega mikið og helst heill að þá mun hann skora nálægt 20 mörkum eða meira,“ sagði stjórinn í samtali við Lancashire Telegraph.

Andri var fjarri góðu gamni stóran hluta síðasta tímabils sökum meiðsla. Hann hefur byrjað á bekknum í undanförnum tveimur leikjum og segir Mowbray þurfa að álagsstýra Andra svo hann meiðist ekki á ný.
Andri er nú staddur á Íslandi með landsliðinu sem spilar fjóra leiki í C-deild Þjóðadeildarinnar í glugganum.
„Staðan hjá Andra er sú að fram undan eru fjórir landsleikir hjá Íslandi. Ef hann ætlar að ná 20 mörkum þarf hann að spila um 40 leiki.
Höldum krosslögðum fingrum að hann haldist heill og geti hjálpað okkur. Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður sem hentar vel þeim fótbolta sem ég vil spila,“ sagði Mowbray jafnframt.
Andri er nú staddur á Íslandi með landsliðinu sem spilar fjóra leiki í C-deild Þjóðadeildarinnar í glugganum.
„Staðan hjá Andra er sú að fram undan eru fjórir landsleikir hjá Íslandi. Ef hann ætlar að ná 20 mörkum þarf hann að spila um 40 leiki.
Höldum krosslögðum fingrum að hann haldist heill og geti hjálpað okkur. Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður sem hentar vel þeim fótbolta sem ég vil spila,“ sagði Mowbray jafnframt.

Á að baki 39 A-landsleiki og skorað í þeim tíu mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Swansea | 8 | +7 | 17 |
| 2 | West Ham | 8 | +11 | 15 |
| 3 | Middlesbrough | 8 | +4 | 15 |
| 4 | Wolves | 7 | +5 | 14 |
| 5 | West Brom | 8 | +2 | 14 |
| 6 | QPR | 8 | +3 | 13 |
| 7 | Stoke City | 8 | +1 | 13 |
| 8 | Bristol City | 8 | -1 | 13 |
| 9 | Charlton Athletic | 8 | -3 | 12 |
| 10 | Birmingham | 8 | +1 | 11 |
| 11 | Millwall | 8 | 0 | 11 |
| 12 | Lincoln City | 8 | -1 | 11 |
| 13 | Southampton | 8 | +9 | 10 |
| 14 | Wrexham | 8 | -3 | 10 |
| 15 | Bolton | 8 | -4 | 10 |
| 16 | Blackburn | 8 | 0 | 9 |
| 17 | Norwich | 8 | -1 | 9 |
| 18 | Sheffield Utd | 8 | -2 | 9 |
| 19 | Portsmouth | 7 | -1 | 8 |
| 20 | Watford | 8 | -3 | 8 |
| 21 | Cardiff City | 8 | -2 | 7 |
| 22 | Derby County | 8 | -7 | 5 |
| 23 | Preston NE | 8 | -7 | 4 |
| 24 | Burnley | 8 | -8 | 4 |