24.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lítur mikið upp til Sergio Ramos

Mynd: EPA

Sergio Ramos er í miklu uppáhaldi hjá Branthwaite

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Jarrad Branthwaite segir Sergio Ramos vera sitt helsta átrúnaðargoð í fótboltanum og að Spánverjinn hafi haft mikil áhrif á það hvernig leikmaður hann er í dag.
Branthwaite, sem er 24 ára, á aðeins einn landsleik að baki fyrir England en stefnir á að festa sig í sessi í landsliðinu.
Hann hefur reglulega verið orðaður við stærstu félög Englands og kæmi lítið á óvart ef hann tæki næsta skref á ferlinum á næsta ári.
Varnarmaðurinn segir að einn leikmaður hafi haft sérstaklega mikil áhrif á það hvernig fótboltamaður hann er í dag.
„Þegar ég var að alast upp horfði ég mikið á leiki Real Madrid og Barcelona. Ég sá hversu mikill leiðtogi Sergio Ramos var og hversu grimmur hann var. Hann skoraði sömuleiðis fullt af mörkum og var bara þessi fullkomni leikmaður. Mér finnst hann góður leikmaður til að byggja sinn eigin leik á,“ sagði Englendingurinn.
Ramos er talinn einn besti varnarmaður allra tíma. Hann vann ógrynni titla með Real Madrid og varð auk þess tvisvar Evrópumeistari og einu sinni heimsmeistari með spænska landsliðinu. Það er því vel skiljanlegt að margir varnarmenn líti til hans sem fyrirmyndar.
Branthwaite segir jafnframt að Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, hafi sett skýrt markmið fyrir Þjóðadeildina í ár.
„Skilaboð þjálfarans voru að fara alla leið í keppninni og vinna hana. Að vinna Þjóðadeildina væri stórt fyrir okkur og skilaboðin voru að ná í úrslit í öllum tíu leikjunum,“ sagði Branthwaite.