24.09.26 - 21:11
Ívan Guðjón Baldursson
Mbeumo og Wissa skoruðu í sigrum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Landsleikjaglugginn er kominn á fullt og fóru leikir fram um allan heim í dag, meðal annars í Afríku og Asíu.
Í Afríku mættust hinar ýmsu þjóðir í forkeppni fyrir Afríkukeppnina og skoraði Bryan Mbeumo annað markið í 3-1 sigri Kamerún gegn Kómoreyjum.
Yoane Wissa, sóknarleikmaður Newcastle, var þá í byrjunarliði Austur-Kongó sem lagði Miðbaugs-Gíneu að velli. Wissa skoraði seinna markið í 2-0 sigri eftir að fyrrum Newcastle-maðurinn Chancel Mbemba skoraði í fyrri hálfleik.
Aaron Wan-Bissaka, Axel Tuanzebe, Arthur Masuaku og Noah Sadiki voru einnig í byrjunarliði Kongó.
Franck Kessié, leikmaður Atalanta, skoraði þá og lagði upp í 2-0 sigri Fílabeinsstrandarinnar gegn Gana. Yan Diomande, Nicolas Pépé, Yoan-Ange Bonny, Ibrahim Sangaré, Ousmane Diomandé og Evan Ndicka voru meðal byrjunarliðsmanna í ógnarsterku liði Fílabeinsstrandarinnar.
Í byrjunarliði Gana vantaði nokkrar stjörnur en þó mátti finna Caleb Yirenkyi, dýrasta leikmann í sögu Coventry, og Abdul Fatawu, sem er meðal dýrustu leikmanna í sögu Ipswich Town, í liðinu. Auk þeirra voru Brandon Thomas-Asante, sem er samherji Yirenkyi hjá Coventry, og Ernest Nuamah leikmaður Lyon í byrjunarliðinu.
Að lokum lenti Simbabve tveimur mörkum undir á útivelli gegn Síerra Leóne og var staðan 2-0 í leikhlé. Wolves-mennirnir Marshall Munetsi og Tawanda Chirewa svöruðu með því að skora þrjú mörk og sigra leikinn. Marvelous Nakamba, fyrrum leikmaður Aston Villa, átti stoðsendingu.
Namibía 1 - 0 Vestur-Kongó
Austur-Kongó 2 - 0 Miðbaugs-Gínea
Líbía 2 - 2 Botsvana
Máritanía 3 - 1 Mið-Afríkulýðveldið
Kamerún 3 - 1 Kómoreyjar
Fílabeinsströndin 2 - 0 Gana
Síerra Leóne 2 - 3 Simbabve
Túnis 1 - 1 Úganda
Sameinuðu arabísku furstadæmin 4 - 0 Jemen
Katar 2 - 0 Barein