Natasha snýr aftur í landsliðshópinn - „Frábær í hóp og góður leiðtogi“

Natasha Anasi snýr aftur í landsliðshópinn en Þorsteinn horfir meðal annars til reynslu hennar og leiðtogahæfileika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Natasha Anasi snýr aftur í landsliðshópinn en Þorsteinn horfir meðal annars til reynslu hennar og leiðtogahæfileika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Natasha Anasi snýr aftur í íslenska landsliðshópinn fyrir umspilsleikina gegn Króatíu. Þorsteinn Halldórsson segir frammistöðu hennar með Grindavík/Njarðvík eiga þátt í valinu en horfir ekki síður til reynslu hennar og leiðtogahæfileika.
Natasha sleit aftara krossband í ágúst á síðasta ári og lék sinn fyrsta leik eftir meiðslin í mars. Hún hefur síðan verið í lykilhlutverki hjá nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur.
Undir hennar forystu tryggði liðið sér sæti í efri hluta Bestu deildarinnar og komst í bikarúrslit í fyrsta sinn, þar sem liðið tapaði naumlega gegn Þrótti.
Þorsteinn var spurður hvort frammistaða Natöshu í sumar væri helsta ástæða þess að hún kæmi aftur inn í landsliðshópinn.
„Já, bæði og. Við komum til með að vera með reynsluminni varnarlínu og ég vildi fá Natöshu, með hennar reynslu, inn í hópinn,“ sagði Þorsteinn.
Ingibjörg Sigurðardóttir á von á barni og þá er Sædís Rún Heiðarsdóttir meidd, nokkrar breytingar hafa því orðið á varnarlínu Íslands. Þorsteinn telur Natöshu geta hjálpað yngri og reynsluminni leikmönnum innan sem utan vallar.
„Hún er frábær í hóp, góður karakter og góður leiðtogi fyrir yngri leikmennina að leita til.“
Natasha, sem er 34 ára, á að baki níu A-landsleiki og eitt mark fyrir Ísland. Hún var hluti af íslenska hópnum sem tók þátt í lokakeppni Evrópumótsins í Sviss síðasta sumar.
