Steini um Emelíu: Komin með kraftinn aftur


Mynd: HB Køge


Mynd: HB Køge

Leið Emelíu að fyrsta landsliðskallinu hefur þó ekki verið auðveld. Hún sleit krossband í hné á æfingu með HB Köge árið 2024 og var frá keppni í rúmt ár en hefur nú unnið sig aftur inn í stórt hlutverk.
Hún var valin efnilegasti leikmaður HB Køge árið 2025, lék með FC Kaupmannahöfn að láni síðastliðið vor og er nú komin aftur til danska meistaraliðsins.
Þorsteinn var spurður hvort Emelía gæti komið strax inn í íslenska liðið eða hvort kallið snerist fyrst og fremst um að leyfa henni að kynnast landsliðsumhverfinu.
„Þetta er bæði og. Hún hefur verið áberandi í yngri landsliðunum. Hún er komin til baka og komin með neistann og kraftinn aftur,“ sagði Þorsteinn.
Emelía kom af varamannabekknum gegn Arsenal í Meistaradeildinni á dögunum og var nálægt því að skora.
„Hún gerði vel í leiknum á móti Arsenal, í þeim mínútum sem hún fékk þar. Vonandi er hún bara vaxandi.“
Fótboltinn er Emelíu í blóð borinn. Hún er dóttir knattspyrnuþjálfarans Óskars Hrafns Þorvaldssonar og yngri systir Orra Steins Óskarssonar, fyrirliða íslenska karlalandsliðsins.
„Ég gef leikmönnum tækifæri þegar það er hægt. Þá þurfa þeir að sýna og sanna sig,“ sagði Þorsteinn.
