24.09.26 - 14:55
Elvar Geir Magnússon
Vináttulandsleikir: Svekkjandi tap í fyrsta leik Forlan

Takefusa Kubo skýtur í vináttulandsleiknum gegn Úrúgvæ.

Mynd: EPA

Diego Forlan á fréttamannafundi.

Mynd: EPA

Son Heung-min í baráttu við Angelo Preciado í leik Suður-Kóreu gegn Ekvador.

Japan 3 - 1 Úrúgvæ
1-0 Kuryu Matsuki ('11 )
1-1 Maximiliano Araujo ('42 )
2-1 Ayase Ueda ('90 )
3-1 Kento Shiogai ('90 )
Japan vann 3-1 heimasigur á Úrúgvæ í vináttulandsleik sem fram fór í dag. Engin draumabyrjun fyrir Diego Forlan, fyrrum sóknarmann Manchester United og úrúgvæska landsliðsins, sem stýrði Úrúgvæ í fyrsta sinn.
Forlan, sem er 47 ára, tekur við af Marcelo Bielsa sem lét af störfum eftir að Úrúgvæ mistókst að komast upp úr riðlakeppni HM. Forlan gerði stuttan samning en úrúgvæska fótboltasambandið hyggst ráða þjálfara til frambúðar um áramótin.
Allt stefndi í 1-1 jafntefli í leiknum í dag þar til í lok leiksins þar sem japnaska liðið skoraði tvívegis.
Úrúgvæ leikur þrjá vináttulandsleiki í Asíu í þessum glugga en liðið mætir Suður-Kóreu á mánudag og leikur svo gegn Indlandi þann 6. október.

TENGT EFNI
Forlan gerir stuttan samning við Úrúgvæ
Suður-Kórea 3 - 0 Ekvador
1-0 Oh Hyun-Gyu ('54 )
2-0 Son Heung-Min ('58 )
3-0 Dong-Gyeong Lee ('86 )
Það voru mikil læti í Suður-Kóreu eftir vonbrigðagengi á HM í sumar en Spánverjinn Robert Moreno er tekinn við stjórnartaumunum til bráðabirgða. Liðið vann 3-0 sigur gegn Ekvador í vináttulandsleik í dag en Son Heung-Min var meðal markaskorara.
Moreno gerði samning um að stýra Suður-Kóreu í sex leikjum en ef vel gengur gæti hann fengið lengri samning og mögulega stýrt liðinu í Asíubikarnum sem verður í Sádi-Arabíu í janúar.
Svipmyndir úr leikjunum: