Fotbolti.net
24.10.26 - 18:52
Kári Snorrason

Tíu þjálfarar sem ÍA getur horft til

Fylkir er með óraunhæfar kröfur um verð fyrir Heimi.

Fylkir er með óraunhæfar kröfur um verð fyrir Heimi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ljóst er að ÍA er í þjálfaraleit eftir að félagið tilkynnti um að Lárus Orri Sigurðsson hafi látið af störfum sem þjálfari liðsins.

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, hefur verið nefndur sem líklegasti kosturinn og hefur ÍA fundað með Heimi. Til þess að fá Heimi þyrfti ÍA að greiða Fylki en samkvæmt heimildum eru kröfurnar úr Árbænum óraunhæfar.

Fótbolti.net hefur tekið saman tíu þjálfara sem eru líklegir til að taka við starfinu uppi á Skipaskaga.
Lárus Orri lætur af störfum hjá ÍA (Staðfest)
TENGT EFNI

Lárus Orri lætur af störfum hjá ÍA (Staðfest)

Heimir Guðjónsson
Þrátt fyrir óraunhæfar kröfur Fylkis heyrast sögur þess efnis að Heimir sé enn efsti maður á blaði hjá Skagamönnum. Heimir lék með ÍA 1998 og 1999.

Lúðvík Gunnarsson
Hefur verið að gera góða hluti með U21 landsliðið eftir að Ólafur Ingi Skúlason var ráðinn til Breiðabliks. Lúðvík er sjálfur Skagamaður en hann hefur ekki farið leynt með það að hann vilji U21 starfið til frambúðar.

Eiður Smári Guðjohnsen
Það væri hæpið að sjá Eið halda áfram með KA eftir fall liðsins, klárlega spennandi kostur sem Skagamenn geta horf til.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Hefur gert frábæra hluti með NSÍ Runavík í Færeyjum og er nú aðeins einu stigi frá því að landa færeyska meistaratitlinum. Fjölskylda Sigurðar er búsett á Íslandi og er hann opinn fyrir því að snúa aftur heim.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Gunnar tók við HK síðasta vetur eftir að hafa gert góða hluti með Njarðvík þar áður. Hann er búsettur á Akranesi og þekkir vel til ÍA, þar sem sonur hans, Gabríel Snær, var leikmaður liðsins áður en hann var seldur út í sumar.

Srdjan Tufegdzic, Túfa
Hélt til Svíþjóðar síðasta vetur eftir að hafa verið sagt upp störfum á Hlíðarenda. Þekkir íslensku deildina vel og væri skemmtilegt að fá hann aftur í deildina.

Jökull Elísabetarson
Var rekinn frá Stjörnunni í byrjun sumars eftir að hafa verið í Garðabænum í fjögur ár.

Pétur Pétursson
Pétur hefur ekkert verið viðloðinn þjálfun síðan hann hætti með kvennalið Vals fyrir tveimur árum. Skagamaðurinn hefur aldrei stýrt ÍA á þjálfaraferlinum.

Arnar Grétarsson
Var síðast bráðabirgðaþjálfari Fylkis á síðasta tímabili og hefur ekki verið viðloðandi þjálfun síðan þá. Er opinn fyrir endurkomu á hliðarlínuna og klárlega góður kostur.

Sigurður Jónsson
Sigurður þekkir hvern krók og kima á Akranesi og eru eflaust margir Skagamenn sem vilja sjá hann við stjórnvölinn.
Hæpið að sjá Eið áfram á Akureyri.

Hæpið að sjá Eið áfram á Akureyri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Túfa var látinn fara frá sænska B-deildar liðinu Varnamö fyrr á árinu.

Túfa var látinn fara frá sænska B-deildar liðinu Varnamö fyrr á árinu.

Canon

Mynd: Túfa

Lúðvík Gunnarsson hefur gert góða hluti með U21 landsliðið.

Lúðvík Gunnarsson hefur gert góða hluti með U21 landsliðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Grétarsson er án starfs.

Arnar Grétarsson er án starfs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Heiðar er þjálfari HK.

Gunnar Heiðar er þjálfari HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.