Fotbolti.net
24.10.26 - 17:59
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Jói Kalli: Vonandi hafa sem flest lið áhuga á þeim

Auglýsing
Jói Kalli: Vonandi hafa sem flest lið áhuga á þeim
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag fór fram lokaumferðin í Bestu Deildini. FH fékk Þór í heimsókn á Pepsi vellinum, Þór þurfti að vinna leikinn til þess að halda sætinu sínu. FH tapaði leiknum 1-2 og þjálfari FH, Jóhannes Karl Guðjónsson, mætti í viðtal eftir leik.

Lestu um leikinn: FH 1 - 2 Þór

„Ömurlegt að tapa fótboltaleikjum og við vissum að Þórsarar myndu koma gjörsamlega trylltir í þennan leik og þeir gerðu það. Þeir komu inn í seinni hálfleikinn mjög grimmir. Við á köflum réðum ekki við þá og uppskáru þennan sigur sem ég get eiginlega ekki annað sagt sé verðskuldað. Við vorum að spila ágætlega á köflum og búa til ágætis stöður og færi, við hefðum alveg getað skorað meiri í fyrir hálfleiknum og allt það. En þeir voru töluvert grimmari á köflum og ég held að þeir eigi þennan sigur alveg skilið."

„Það var klaufalegt hvernig við vorum að fá þessi mörk á okkur. Það voru þessi móment þar sem við vorum í föstum leikatriðum, við erum að sækja og klaufar að klára ekki færin okkar betur. Við erum að tapa honum á hættulegum stöðum, þeir eru aggresívir og pressa vel, það er mikil orka í þeim."

„Við viljum mikið meira, ég hefði viljað enda töluvert ofar í deildinni. Ég hefði viljað vera mikið nær því að komast í efri hlutann heldur en raun bar vitni. Fullt af jákvæðum hlutum, fullt af góðum leikjum og frammistöðum, en líka fullt af hlutum sem við getum lært af og lagað inn í næsta tímabil. Lang yngsta liðið í deildinni, við vitum það alveg."

„Það eru margir leikmenn sem hafa vakið gríðarlegan áhuga á þessu tímabili og hafa unnið mikið fyrir því. Þeir hafa lagt hart á sig allt undirbúningstímabil og margir sem hafa sýnt mjög góða frammistöðu á þessu tímabili. Vonandi hafa sem flest lið áhuga á þeim en við erum ekki að fara selja neina leikmenn í burtu af því að við viljum selja. Það þarf að vera rétt fyrir alla aðila annars hleypum við engum í burtu sem er samningsbundin."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.