24.10.26 - 17:17
Kári Snorrason
Lárus Orri: Fékk aldrei þau skilaboð frá stjórninni að vegferðin væri óásættanleg
Auglýsing

Lárus Orri hefur látið af störfum sem þjálfari ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA endaði í 4. sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tók við liðinu síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eggert Herbertsson, formaður ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson hefur verið orðaður við ÍA.

Lárus Orri Sigurðsson hefur látið af störfum sem þjálfari ÍA. Félagið tilkynnti um tíðindin fyrir skemmstu.
Síðasta leik hans með liðið var að ljúka, þar sem ÍA gerði 4-4 jafntefli við Keflavík, og mætti hann í viðtal að leik loknum.

TENGT EFNI
Lárus Orri lætur af störfum hjá ÍA (Staðfest)
Ánægður með tímabilið
Lárus var spurður hvort að hann sé ánægður með tímabilið heilt á litið, hann svaraði játandi og fór vel yfir sumarið.
„Ég er sáttur við tímabilið í heild sinni. Það er ýmislegt búið að ganga á. Þetta er sennilega þrettánda tímabilið sem ég klára sem þjálfari og eftir öll tímabil þá er eitthvað sem þú vilt gera betur. En heilt yfir er ég ánægður með tímabilið. Við byrjuðum ekki alveg nógu vel. Við vorum ekki að ná að klára leikinn nógu vel í byrjun og ég veit ástæðuna fyrir því. Ég ætla ekki að segja hana en ég veit hana.“
„Það voru stig þannig að við hefðum átt að fá: KR heima, Breiðablik úti. Fram sem við missum niður á útivelli. En við förum svo af stað og förum alveg ágætlega inn í fyrsta landsleikjahléið. Eftir það þá kemur þetta, þessi fimm leikja hrina sem margir tala um.
Það sem að menn kannski átta sig ekki á, og þeir sem að skoðuðu þetta ekki almennilega, er að þá var ýmislegt í gangi hjá okkur. Leikirnir voru alls ekkert alslæmir en við vorum bara ekki að ná úrslitum. En hópurinn er öflugur og menn náðu að snúa þessu við. Náðu að klára þetta eins og menn.“
Engar athugasemdir frá stjórninni
Lárus hélt áfram og ræddi meðal annars um óhóflegar væntingar. Hann vitnaði meðal annars í samantekt sem Fótbolti.net tók og spurði stuðningsmenn ÍA út í tímabilið.

„Svo er ýmislegt annað sem að fólk er að henda upp, það er að segja það tímabilið 2024 hafi verið miklu betra út af því að þar hafa verið að berjast um Evrópusæti alla leiktíðina. Það sem menn gera sér ekki grein fyrir þar er að þá tryggði fjórða sætið Evrópusæti. Þannig að ef að fjórða sætið væri Evrópusæti núna, þá værum við í Evrópu og þá hefðum við verið að berjast um Evrópusæti allan tímann,“ sagði Lárus og hélt áfram.
„Væntingarnar voru kannski svolítið út úr hófi. Auðvitað stefndum við á Evrópusæti, það er galið að fara ekki inn í tímabil og stefna ekki á Evrópusæti.
Var komið til mín úr stjórn og sagt að það væri krafa að fara í Evrópu?, aldrei nokkurn tímann. Enda hefði einhver komið til mín út stjórn og sagt: „Það er krafa að fara í Evrópu,“ þá hefði ég bent þeim á að við þyrftum að styrkja okkur meira til þess. Aldrei á neinum tímapunkti kom neinn til mín úr stjórn og sagði að frammistaða liðsins eða á hvaða vegferð við værum væri óásættanleg. Þannig að ég held að heilt yfir þá hefði þetta bara verið mjög flott sumar,“ sagði Lárus að lokum.

Stuðningsmenn ÍA um framtíð Lárusar Orra - „Kominn á endastöð“