24.10.26 - 18:49
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu mörk Andra Lucasar: Stórkostleg afgreiðsla

Mynd: Blackburn Rovers

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Blackburn Rovers
Andri Lucas Guðjohnsen var á sínum stað í byrjunarliði Blackburn Rovers í Championship deildinni í dag og skoraði bæði mörk liðsins í dýrmætum sigri gegn Wrexham.

TENGT EFNI
Championship: Andri Lucas með tvennu og er næstmarkahæstur
Þetta er annar leikurinn í röð sem Andri skorar bæði mörk Blackburn, en í síðustu umferð tapaði liðið 3-2.
Blackburn hefur verið að spila vel í síðustu leikjum, eftir hörmulega byrjun á tímabilinu, og er með 18 stig eftir 12 umferðir - aðeins tveimur stigum frá umspilssæti.
Hægt er að sjá mörkin sem Andri skoraði gegn Wrexham í dag hér fyrir neðan. Hann fylgdi marktilraun Samy Morsy eftir til að ná forystunni undir lok fyrri hálfleiks og innsiglaði svo sigurinn með stórkostlegri afgreiðslu eftir góðan undirbúning frá Todd Cantwell í síðari hálfleik.