24.10.26 - 18:03
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Sex mörk í stórleiknum í Napólí

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Napoli 3 - 3 Roma
1-0 Zambo Anguissa ('28 )
2-0 Scott McTominay ('48 )
2-1 Matias Soule ('70 )
2-2 Leonardo Balerdi ('74 )
3-2 Scott McTominay ('83 )
3-3 Leonardo Balerdi ('89 )
1-0 Zambo Anguissa ('28 )
2-0 Scott McTominay ('48 )
2-1 Matias Soule ('70 )
2-2 Leonardo Balerdi ('74 )
3-2 Scott McTominay ('83 )
3-3 Leonardo Balerdi ('89 )
Napoli og Roma áttust við í stórleik dagsins í ítalska boltanum og úr varð gríðarlega spennandi slagur. Toppbaráttulið Roma var án lykilmanna vegna meiðsla á meðan Scott McTominay og Zambo Anguissa voru búnir að ná fullum bata í herbúðum Napoli.
Napoli var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik og skoraði Anguissa eina markið með frábærri bakfallsspyrnu á 28. mínútu, svo staðan var 1-0 í leikhlé.
Leikurinn jafnaðist út í síðari hálfleik en var áfram opinn og skemmtilegur, nema að í seinni hálfleik sýndu leikmenn gæðin sín með að nýta færin sem buðust.
McTominay tvöfaldaði forystu heimamanna með skalla af stuttu færi áður en Matías Soulé minnkaði muninn með laglegu skoti utan vítateigs eftir þríhyrningsspil við Donyell Malen. Skömmu síðar jafnaði miðvörðurinn Leonardo Balerdi muninn þegar boltinn datt fyrir hann eftir mikinn atgang í kjölfar hornspyrnu.
McTominay endurheimti forystu Napoli með langskoti meðfram jörðinni sem Pierluigi Gollini réði ekki við, en Mile Svilar besti markvörður deildarinnar var fjarverandi vegna meiðsla.
Skoski landsliðsmaðurinn skoraði á 83. mínútu en þetta dugði ekki til að sigra viðureignina þar sem Balerdi var aftur á ferðinni undir lokin, þegar hann stangaði fyrirgjöf frá Wesley Franca í netið.
Napoli reyndi að endurheimta forystuna aftur en tókst ekki að skapa mikla hættu í uppbótartímanum, svo lokatölur urðu 3-3.
Roma er í þriðja sæti Serie A, með 18 stig eftir 8 umferðir. Þetta er þriðja jafntefli liðsins í síðustu fjórum umferðum.
Napoli hefur ekki farið jafn vel af stað og er um miðja deild með 11 stig.