Fotbolti.net
24.10.26 - 17:22
Ívan Guðjón Baldursson

Einar Freyr: Að hafa fengið hann á láni er bara grín

Auglýsing
Einar Freyr: Að hafa fengið hann á láni er bara grín
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Einar Freyr Halldórsson var mjög ánægður eftir ótrúlega mikilvægan sigur Þórs gegn FH í lokaumferð Bestu deildarinnar.
Lestu um leikinn: FH 1 - 2 Þór
Þór bjargaði sér frá falli með sigrinum. Liðið vann þrjá síðustu leiki tímabilsins til að forðast fall aftur niður í Lengjudeildina og tókst á sama tíma að fella nágranna sína í KA, sem unnu 5-1 stórsigur í lokaumferðinni.

„Þetta var ótrúlegt, mig hefði aldrei getað dreymt þetta. Þetta var einstakur leikur. Þórsara stuðningsmennirnir voru geggjaðir eins og alltaf og við skiluðum úrslitunum. Mér er alveg sama þó KA unnu, við felldum þá," sagði Einar Freyr, sem er fæddur 2008 og uppalinn hjá Þór.

Þorri Ingólfsson, fæddur 2009, skoraði bæði mörk Þórs til að halda Akureyringum uppi og hrósaði Einar liðsfélaga sínum í hástert.

„Að hafa fengið hann á láni er bara grín. Þetta er ruglaður leikmaður og það er drullugaman að spila með honum."

Einar var spurður út í framtíðina og segist vera býsna hræddur um að þetta hafi verið hans síðasti leikur fyrir Þór í bili. Hann segir þó engan samning vera á borðinu frá liðum utan landsteinanna sem stendur.

„Ég hef heyrt af einhverjum áhuga bara en það er enginn samningur á borðinu núna. Ég verð bara að skoða þetta með umboðsmanninum mínum. Ég er býsna hræddur um að þetta hafi verið minn síðasti leikur fyrir Þór í bili."
Einar Freyr: Að hafa fengið hann á láni er bara grín
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.