Aron Birkir hrósar ungu leikmönnunum eftir að Þór hélt sæti sínu


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Æðislegt, þetta var bara geðveikt" sagði Aron Birkir Stefánsson, fyrirliði Þórs, eftir að Þór sigraði FH á útivelli 1-2.
Með sigrinum var það staðfest að Þór spilar í Bestu Deildinn næsta sumar. Á sama tíma féll KA niður í Lengjudeildina.
„Þetta var skemmtilegur leikur, allavega að spila hann, ég veit ekki hvernig það var að horfa á hann. Manni líður ótrúlega einhvernveginn."
„Mér fannst við aðeins fyrstu tíu aðeins tenseaðir og þeir skora á áttundu mínútu. Svo bara restina af fyrri hálfleik vorum við nokkurn veginn með þá fannst mér. Svo var smá hark í seinni."
Hvernig var spilamennskan í dag?
„Hún var ekki eins góð og í síðustu tveimur leikjum, ég er á því. Þetta var ekki okkar besta frammistaða en mér gæti ekki verið meira sama."
Með sigrinum senti Þór KA niður í Lengjudeildina.
„Það þurfti eitthvað lið að falla, það var fínt að það var ekki við."
„Ég vildi bara halda mér uppi, það er fínt og gaman að spila þessa leiki. Ég vildi frekar halda mér í deildinni og ég væri alveg til í að fórna því fyrir það."
Hver var lykillinn að því að þið hélduð ykkur uppi?
„Menn tóku sig saman og eins og ég sagði í eitthverju viðtali um daginn að við fáum inn sterka leikmenn og mjög sterkt hjá þjálfurum og stjórn að taka inn leikmenn. Við tókum inn réttu leikmennina og ofan á það þá voru fleiri sem tóku næsta skref. Þú sérð hérna bestu fjórir gæjarnir okkar í dag eru 2009, 2008, 2008 og 2008. Þeir tóku aukaskref og settu aðeins meiri gír. Þetta var sambland af nýjum mönnum og taka meiri ábyrgð."
