Fotbolti.net
24.10.26 - 18:08
Brynjar Óli Ágústsson

Hólmar aðstoðarþjálfari í kveðjuleik: Frumraunin hefði mátt fara betur

Auglýsing
Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals

Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Sérstakur leikur að mörgu leyti. Við bjuggumst ekki við að koma hérna og Stjarnan myndi liggja til baka og beita skyndisóknum. Við réðum illa við það í fyrri hálfleik. Bara gríðarlega svekkjandi að tapa illa í seinasta leik,'' segir Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, eftir 6-0 tap gegn Stjörnunni í loka umferð Bestu deildarinnar.

Lestu um leikinn: Stjarnan 6 - 0 Valur

Hólmar fer yfir tímabilið hjá Val

„Þetta er búið að vera mikið upp og niður, við ætluðum okkur ekki að vera í neðri helmingnum og fyrst við vorum í neðri helmingnum ætluðum við að vinna hann og glötuðum því niður í dag,''

Hólmar átti að spila sinn seinasta leik sem leikmaður í dag en ákvað að vera aðstoðarþjálfari Vals í staðinn.

„Mig langaði bara að prófa það. Mig langaði að prófa að horfa á leikinn frá hliðarlínunni og reyna að koma með eitthvað input þaðan og sjá hvort maður sæi eitthvað leikinn öðruvísi. Maður lokar engum dyrum hvað þetta varðar. Þó að frumraunin hefði nú mátt fara betur þá leyst mér ágætlega á þetta.''

Hólmar var spurður út í hvað kemur næst hjá honum.

„Það verður bara að koma í ljós. Það kemur tími núna sem maður getur aðeins sest niður og farið yfir málin,''

Hólmar fer yfir feril sinn hjá Val.

„Maður hefði auðvitað viljað skilja einhverjum titlum í hús. Það er eitthvað sem þarf að horfast í augu við að við höfum oft verið með góða hópa en ekki náð að ýta þessu yfir línuna. En auðvitað hefur þetta verið mjög skemmtilegt sem heild þegar ég horfi á þetta þannig,''

Hólmar var líka spurður út í hápunktinn á ferli sínum.

„Það eru pottþétt árin hjá Rosenborg og bara að spila fyrir landsliðið sem stendur upp úr og er það sem maður dreymdi um og ætlaði að ná þegar maður var barn og gaman að hafa náð því,''

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.