Fotbolti.net
24.10.26 - 18:41
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Bellingham hjálpaði Dortmund aftur á sigurbraut

Þýskaland: Bellingham hjálpaði Dortmund aftur á sigurbraut
Canon

Mynd: EPA

Borussia Dortmund 1 - 0 Eintracht Frankfurt
1-0 Maximilian Beier ('80 )
Borussia Dortmund og Eintracht Frankfurt áttust við í stórleik í þýska boltanum í dag og var staðan markalaus eftir jafnan og skemmtilegan fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu gott færi til að skora.

Dortmund tók stjórn á leiknum í síðari hálfleik en tókst ekki að koma boltanum í netið fyrr en Maximilian Beier og Jobe Bellingham var skipt inn af bekknum. Bellingham og Beier spiluðu boltanum frábærlega sín á milli og endaði Beier sóknina á því að skora frábært mark með nákvæmu skoti utan vítateigs.

Markið kom á 80. mínútu og fundu gestirnir frá Frankfurt ekkert svar, svo þetta reyndist eina mark leiksins.

Dortmund endurheimtir toppsætið með þessum sigri. Liðið er með 17 stig eftir 7 umferðir, þremur stigum fyrir ofan Þýskalandsmeistara FC Bayern sem eiga leik til góða og eru með talsvert betri markatölu.

Þetta er kærkominn sigur fyrir Dortmund eftir að hafa gert jafntefli í síðustu tveimur deildarleikjum.
Þýskaland: Bellingham hjálpaði Dortmund aftur á sigurbraut
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.