24.10.26 - 17:10
Sverrir Örn Einarsson
Kristófer: Ég fór í deyfisprautu núna í morgun
Auglýsing

Kristófer og Þór verða áfram í Bestu deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristófer Kristjánssyni leikmanni Þórs var að vonum nokkuð létt eftir 2-1 sigur Þórs á FH í lokaumferð Bestu deildar karla sem fram fór í dag. Sigurinn þýddi að sæti Þórs í deildinni var tryggt auk þess sem að grannar Þórs í KA verða gera sér að góðu að leika í Lengjudeildinni að ári. Um tilfinningar sínar í leikslok sagðir Kristófer við fulltrúa Fótbolta.net.
„Þær eru mjög góðar, við vorum búnir að vinna fyrir þessu virkilega vel og þetta var í okkar höndum í dag. “
Stuðningsmenn Þórs voru fjölmennir í Laugardal í dag og hvöttu lið sitt vel áfram. Hvernig að var að spila þennan leik fyrir sitt fólk?
„Það er alltaf geðveikt. Að fá fólkið hingað, allt þetta fólk það bara hjálpar okkur gríðarlega. “
Kristófer sjálfur var í basli fyrir leik dagsins og alls var óvíst um þáttöku hans fyrr en í dag.
„Ég fékk smá bakslag á æfingu og náði ekki að vera með á síðustu tveimur æfingum. Ég fór í deyfisprautu núna í morgun og flaug beint eftir það og hitti hópinn hér fyrir sunnan.“
Það hefur sem sagt ekkert annað hvarflað að Kristófer annað en að spila leikinn í dag?
„Nei! Ekki í svona leik. Manni langar alltaf að spila svona leik.“
Sagði Kristófer en allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér að ofan.