Siggi með skilaboð til sérfræðinganna - „Kalla okkur lélegasta liðið í deildinni margoft"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnaðarlætin þegar leikurinn kláraðist.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður mjög vel" sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir að liðið tryggði sér 1-2 sigur gegn FH á útivelli í lokaumferð Bestu deildarinnar.
Með sigrinum tryggði Þór sér áframhaldandi sæti í deild þeirra bestu á næsta tímabili. Á sama tíma féllu grannarnir KA niður í Lengjudeildina.
„Það er búið að dæma okkur niður fyrir helvíti mörgum umferðum og kalla okkur lélegasta lið í deildinni margoft út um allt. Þetta er stórkostlegt, sýnir hvað hjarta, vilji, barátta, leikgleði og samstaða vinnur XG, pressutölur og ég veit ekki hvaða stats þú vilt tala um. Mér fannst við vera frábærir í seinni hluta móts og við eigum þetta svo sannarlega skilið."
„Við voru með átta stig eftir fjórtán leiki, næstu þrettán leikjum fáum við tuttugu og tvö stig. Vorum búnir að fá á okkur fjörutíu og eitt mark í fjórtán leiki, fáum á okkur átján mörk í síðustu þrettán. Þeir sem fjalla um þessa deild, þeir pæla aðeins í þessu og fara yfir þetta og kommenta svo eitthvað á það."
Skilaboð til sérfræðinganna, ekki vanmeta Þór?
„Já, smá virðingu á Þórsliðið og það sem er búið að gera hérna."
Ka féll í dag, er það sætt?
„Já, örugglega fyrir marga Þórsara. Það er leiðinlegt að við skulum ekki vera í sömu deild á næsta ári því að það voru geggjaðar viðureignir og mikil stemming. Maður hefði viljað senda eitthvað annað lið niður, ég persónulega allaveganna."
Var liðið stressað fyrir leikinn?
„Nei, mér fannst við koma mjög flottir inn í þennan leik og alla vikuna, við vorum bara yfirvegaðir. Margir reynslumiklir leikmenn og margir ungir leikmenn sem eru með mikla reynslu, búnir að spila fullt af landsleikjum og fullt af úrslitaleikjum. Þeir voru í gær og í morgun eins og þeir væru á leiðinni í venjulegan leik. Frábærir karakterar og hrikalega stoltur af þeim, þessum ungu gaurum og þessum eldri gaurum. Eins og Greko og Kevin sem koma eitthvern veginn með sinni ró og sinni yfirvegun, hjálpuðu okkur yfir línuna líka."
Þorri Ingólfs skoraði bæði mörk Þórs í dag.
„Bara einn besti leikmaðurinn okkar í seinni partinn, þetta er stórkostlegur fótboltamaður. Get eiginlega ekki beðið eftir að fylgjast með hans ferli og ég er stoltur að hafa kynnst svona manni eins og Þorra Ingólfssyni."
„Ég myndi vilja hafa hann í öllum liðum sem ég hef nokkurn tímann þjálfað."

Fagnaðarlætin þegar leikurinn kláraðist.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
