24.10.26 - 18:15
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Fjögur mörk í fjörugum lokaleik deildartímabilsins

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 2 - 2 Fram
0-1 Kristófer Konráðsson ('10)
1-1 Aron Elís Þrándarson ('34)
1-2 Þorri Stefán Þorbjörnsson ('57)
2-2 Valdimar Þór Ingimundarson ('70)
0-1 Kristófer Konráðsson ('10)
1-1 Aron Elís Þrándarson ('34)
1-2 Þorri Stefán Þorbjörnsson ('57)
2-2 Valdimar Þór Ingimundarson ('70)
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 Fram
Íslandsmeistarar Víkings R. luku tímabilinu í Bestu deildinni á heimavelli gegn Fram í dag og lentu undir í tvígang. Liðin mættust í lokaleik deildartímabilsins sem hófst eftir að öðrum leikjum lokaumferðarinnar lauk fyrr í dag.
Kristófer Konráðsson skoraði glæsilegt mark eftir innan við tíu mínútna leik. Hann fékk stutta hornspyrnu til sín og smellti boltanum í netið úr mjög erfiðu færi. Uggi Jóhann Auðunsson markvörður virtist ekki eiga möguleika á að verja.
Fram byrjaði leikinn mun betur og var sterkari aðilinn en Víkingar unnu sig inn í leikinn með jöfnunarmarki og var staðan 1-1 í hálfleik. Aron Elís Þrándarson gerði jöfnunarmarkið með flottu skoti eftir misheppnaða hreinsun gestanna.
Heimamenn byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti en fengu mark í bakið eftir aukaspyrnu á 57. mínútu sem var tekin við hornfánann. Þorri Stefán Þorbjörnsson skoraði í autt markið eftir að Uggi markvörður fór út í skógarhlaup og missti af boltanum.
Valdimar Þór Ingimundarson jafnaði á ný fyrir Íslandsmeistarana eftir frábæran undirbúning frá Gylfa Þór Sigurðssyni og var staðan jöfn á lokakaflanum.
Kennie Chopart komst nálægt því að koma Fram yfir í þriðja sinn í leiknum en skaut fyrst framhjá áður en Uggi varði frá honum og á hinum endanum gerði Viktor Freyr Sigurðsson vel að verja marktilraun Helga Guðjónssonar í uppbótartímanum. Lokatölur 2-2.