Fotbolti.net
24.10.26 - 22:41
Ívan Guðjón Baldursson

Arteta ánægður eftir að hafa skipt fimm mönnum út

Arteta ánægður eftir að hafa skipt fimm mönnum út
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta var ánægður með 2-0 sigur Englandsmeistara Arsenal gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann gerði fimm breytingar á byrjunarliðinu eftir 2-2 jafntefli við Þýskalandsmeistara FC Bayern í Meistaradeildinni í miðri viku.
England: Miðverðir Arsenal afgreiddu Everton
TENGT EFNI

England: Miðverðir Arsenal afgreiddu Everton

Arsenal jafnaði Manchester City á stigum á toppi deildarinnar með sigrinum. Stórveldin deila núna toppsætinu með 21 stig eftir 8 umferðir, eftir að Man City tapaði gegn Aston Villa fyrr í dag.

„Þetta er stór sigur fyrir okkur eftir mjög erfiða viku. Við spiluðum marga erfiða leiki á stuttum tíma svo ég er mjög ánægður. Þetta voru þrír leikir á sex dögum, en við vorum sterkara liðið í dag og verðskulduðum sigurinn," sagði Arteta.

Á undanförnum árum hefur ekkert lið skorað fleiri mörk úr föstum leikatriðum heldur en Arsenal, en þau mörk hafa látið standa á sér á byrjun tímabils - þar til Ezri Konsa skoraði eftir hornspyrnu í dag.

„Ég er alltaf mjög ánægður þegar liðið finnur mismunandi leiðir til að opna varnir andstæðinganna og setja boltann í netið. Ég heyrði marga tala um að við værum ekki enn búnir að skora úr föstu leikatriði og ég vona að þeir séu ánægðir núna!

„Everton sýndi fínan leik en við vorum betri. Við erum með svo góðan leikmannahóp, það er magnað að strákarnir hafi sýnt svona sterka frammistöðu eftir að ég skipti fimm leikmönnum úr byrjunarliðinu frá því í miðri viku. Við stjórnuðum leiknum og hefðum getað skorað meira, en okkur tókst ekki að loka þessu fyrr en Gabriel gerði seinna markið."


Leikmenn, þjálfarateymi og stuðningsmenn Arsenal óttuðust að Gabriel hefði meiðst í leiknum en hann kláraði slaginn.

„Við vorum hræddir um að hann hefði meiðst, þetta leit illa út í fyrstu miðað við viðbrögð leikmanna. Við þekkjum Gabriel vel og hversu harður hann er af sér, þetta virðist ekki hafa verið neitt alvarlegt. Að mínu mati er ekki spurning um að hann sé einn af bestu miðvörðum heims um þessar mundir. Hann er ótrúlega góður varnarlega og hættulegur sóknarlega, auk þess að vera mikill leiðtogi. Hann gerir leikmennina í kringum sig betri og kemur með rosalega sterkt hugarfar í hópinn."
Arteta ánægður eftir að hafa skipt fimm mönnum út
Canon

Mynd: EPA

Arteta ánægður eftir að hafa skipt fimm mönnum út
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.