Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 24. nóvember 2020 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Hástökkvarinn Giroud gerði Gomis brjálaðan
Mynd: Getty Images
Chelsea er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni.

Franski sóknarmaðurinn Olivier Giroud kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið í uppbótartímanum.

Boltinn fór upp í loft í teignum og Giroud var manna áræðnastur í teignum. Hann hoppaði hæð sína og náði að skalla boltann í netið. Frábært mark hjá franska landsliðsmanninum.

Alfred Gomis í marki Rennes átti stórleik og hann var vægast sagt ekki sáttur að fá þetta mark á sig.

Gomis var keyptur til Rennes síðasta sumar eftir að Edouard Mendy yfirgaf félagið og fór til Chelsea. Gomis er fyrrum markvörður Dijon þar sem hann var samherji Rúnars Alex Rúnarssonar.

Með því að smella hérna má sjá mark Giroud og viðbrögð Gomis í kjölfarið.
Athugasemdir
banner
banner
banner