Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 24. nóvember 2021 23:52
Brynjar Ingi Erluson
Loðin svör frá Pochettino - „Alltaf orðrómar í þessum geira"
Mauricio Pochettino
Mauricio Pochettino
Mynd: EPA
Mauricio Pochettino, þjálfari Paris Saint-Germain, gaf ekkert alltof skýr svör um framtíð sína eftir 2-1 tapið gegn Manchester City í Meistaradeildinni í kvöld en hann var meðal annars spurður út í það hvort hann hefði sagt leikmönnum að hann væri skuldbundinn félaginu.

Pochettino hefur síðustu daga verið orðaður við stjórastöðuna hjá Manchester United eftir að Ole Gunnar Solskjær var látinn fara frá félaginu.

Samkvæmt ensku miðlunum er Pochettino heitur fyrir því að snúa aftur til Englands en PSG hefur verið í viðræðum við Zinedine Zidane um að taka við af honum.

Svör hans voru loðin eftir tapið í kvöld.

„Leikmennirnir þekkja stöðuna mjög vel. Þeir vita í hvaða stöðu þeir eru og það eru alltaf orðrómar í þessum geira" sagði Pochettino en Rob Harris, blaðamaður hjá AP, fannst svörin heldur ósannfærandi og fannst þau ekki hljóma eins og hann væri skuldbundinn félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner