Fotbolti.net
25.02.22 - 18:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kári Árna: Víkingur númer eitt benti okkur á hann

Auglýsing
Oliver Ekroth og Kári

Oliver Ekroth og Kári

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, ræddi við Fótbolta.net eftir að félagið tilkynnti um komu Oliver Ekroth til félagsins. Ekroth er þrítugur miðvörður sem að einhverju leyti kemur til með að fylla skarð Kára sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil.
„Við fengum meðmæli að utan, góður og traustur Víkingur þar sem benti okkur á hann. Við fórum að skoða hann nánar í framhaldinu og leist mjög vel á hann. Eftir að hafa skoðað marga leiki með honum þá ákváðum við að reyna við hann," sagði Kári.

Hann segir að það hafi verið sjálfur Einar Guðnason, Víkingur mikill og aðstoðarþjálfari liðsins á síðustu leiktíð, sem hafi bent Víkingi á leikmanninn. „Hann er Víkingur númer eitt, hann er fluttur til Svíþjóðar og kom með þetta."

Kári talaði um það í síðustu viku að Víkingur væri í leit að miðverði. Er þetta púslið sem vantaði?

„Við lítum þannig á að við erum komnir með liðið sem spilar í sumar. Það er augljóst að það er búið að fjölga leikjum, það er Evrópukeppni þannig þetta gæti allt í allt orðið 40 leikja tímabil. Það er svolítið erfitt að ráðast í það með tvo hafsenta. Í fyrra voru ég og Sölvi með Halla og ég lít á stöðuna núna sem þá sömu og við vorum í þá. "

„Við erum búnir að krækja í tvo frambærilega hafsenta, það er samkeppni og þetta gefur okkur möguleika á að spila önnur kerfi. Ég tel þetta mjög sterkt „signing".


Ekroth var fyrirliði hjá Degerfors áður en hann kom í Víking. „Þetta er alvöru leiðtogi og öll svör sem við fengum ýtti stoðum undir það. Í lokin var þetta „no brainer"."

Eruði búnir að loka hópnum alveg fyrir tímabilið? „Já, ég held það. Þetta lítur þannig út en auðvitað á aldrei að segja aldrei. Ef það kemur upp eitthvað rosalega spennandi þá skoðum við allt en við erum mjög ánægðir með hópinn eins og hann er í dag," sagði Kári.

Í lok viðtalsins var hann spurður út í nýja nafnið á efstu deild: Besta deildin og þá var hann einnig spurður út í Meistaradeildarkvöldin á Viaplay.
Einar Guðnason

Einar Guðnason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.