Oliver Ekroth á leið í Víking? - Kári vildi ekki staðfesta tíðindin

Ekroth í leik með Degerfors.

Mynd: Getty Images

Ekroth í leik með Degerfors.

Mynd: Getty Images
Íslandsmeistararnir í Víkingi eru að fá miðvörðinn Oliver Ekroth í sínar raðir ef marka má heimildir Dr. Football.
Ekroth er þrítugur Svíi sem er án félags. Samkvæmt Transfermarkt er hann hávaxinn (187cm) og lék síðast með Degerfors. Degerfors endaði í 13. sæti sænsku Allsvenskan á síðasta tímabili.

Hann hefur einnig leikið með Kristianstad, Västeräs, Oskarshamn og Sandviken í Svíþjóð og Brattvag í Noregi. Alls eru leikirnir 215 á ferlinum í deild og bikar og í þeim hefur hann skorað sextán mörk.
Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, vildi ekki staðfesta tíðindin í samtali við Fótbolta.net.
„Við erum að skoða alla kandídata, erum að leita að hafsent það er ekkert launungarmál. Þú getur ekki verið með tvo hafsenta farandi inn í tímabilið. Við sjáum bara hvað setur," sagði Kári.
Kyle McLagan og Halldór Smári Sigurðsson eru miðverðir Víkings.