Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
Enski boltinn - Þetta er búið og er Bruno bestur?
Hugarburðarbolti GW 30 Mad Max frumsýning í London.
Alfons ræðir um endurkomuna til Hollands, landsliðið og ævintýri Bodö Glimt
Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska
Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík
Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk?
Kjaftæðið - Stóra Bestu deildar yfirferðin
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan.
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Kjaftæðið - Tottenham-menn skíthræddir við fall
Hugarburðarbolti GW 28 Markvörður með stálhönd.
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít
Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður
Kjaftæðið - Allt farið á fullt í íslenska og frábær saga af Kasper Högh
Benoný Breki: Hann er besti miðjumaðurinn í deildinni
Hugarburðarbolti GW 27 Tvö met slegin í Enska!
Kjaftæðið - Liverpool rændi stigum í Nottingham
Enski boltinn - Verða þau í mismunandi deildum á næsta tímabili?
Kjaftæðið - Slátrun í Boganum og allt sauð uppúr á Molineux
   mið 25. febrúar 2026 13:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Manchester
Benoný Breki: Hann er besti miðjumaðurinn í deildinni
Benoný Breki er U21 landsliðsmaður og leikmaður Stockport County á Englandi.
Benoný Breki er U21 landsliðsmaður og leikmaður Stockport County á Englandi.
Mynd: BBA
Sigurmarki fagnað í síðasta mánuði.
Sigurmarki fagnað í síðasta mánuði.
Mynd: Stockport County
'Það er klárlega toppurinn að skora mörk sem skipta máli'
'Það er klárlega toppurinn að skora mörk sem skipta máli'
Mynd: Stockport County
Í hlífðarskó og með hækjur.
Í hlífðarskó og með hækjur.
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
Mark Stott er eigandi Stockport.
Mark Stott er eigandi Stockport.
Mynd: Stockport
Oliver Norwood í baráttunni við N'Golo Kante í leik Sheffied United og Chelsea.
Oliver Norwood í baráttunni við N'Golo Kante í leik Sheffied United og Chelsea.
Mynd: EPA
Marki fagnað með U21 síðasta haust.
Marki fagnað með U21 síðasta haust.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Stockport komst í umspilið á síðasta tímabili og markmiðið er að komast þangað aftur.
Stockport komst í umspilið á síðasta tímabili og markmiðið er að komast þangað aftur.
Mynd: Stockport County
Edgeley Park er heimavöllur Stockport og tekur tæplega 11 þúsund manns í sæti.
Edgeley Park er heimavöllur Stockport og tekur tæplega 11 þúsund manns í sæti.
Mynd: Stockport
Benoný var keyptur til Stockport eftir tímabilið 2024 með KR þar sem hann setti markamet í Bestu deildinni.
Benoný var keyptur til Stockport eftir tímabilið 2024 með KR þar sem hann setti markamet í Bestu deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég mæti alltaf á völlinn, þeir sem eru meiddir mæta á alla og vita hvað er að gerast. Á leikdegi mæti ég um einum og hálfum tíma fyrir leik og horfi á leikinn úr stúkunni," sagði Benoný Breki Andrésson, leikmaður Stockport, við Fótbolta.net á laugardagskvöld.

Fótbolti.net ræddi við hann eftir sigur Stockport gegn Wigan í ensku C-deildinni. Benoný er meiddur á ökkla og mun í fyrsta lagi spila aftur eftir rúma tvo mánuði. Hægt er að hlusta á viðtalið við framherjann í spilaranum efst. Hljóðið er ekki fullkomið og því er hægt er að lesa það helsta.

Erfitt að geta ekki verið inni á vellinum
„Það er erfitt að vera ekki að spila, maður sér miklu meira hvað er að gerast og hvar svæðin eru þegar maður er ekki inni á vellinum. Það er pirrandi að geta ekki verið inni á vellinum."

Staðan gegn Wigan var 2-2 þegar komið var fram í uppbótartíma og heimamenn í Stockport voru í leit að sigurmarki og vantaði stundum mann á lausa bolta inn á teignum. Wigan var á þeim tímapunkti manni færra.

„Þá langar manni að vera inn á. Við náðum að vinna og það var ánægjulegt. Það var gaman að horfa á þennan leik, þetta var einn skemmtilegasti leikur sem ég hef horft á, við fáum aldrei svona mörg mörk í okkar leikjum, sex mörk og tvö rauð í dag. Við gáfum þeim mark eftir tvær mínútur og það var smá sjokk fyrir allt liðið, en svo vel gert hvernig við svöruðum og skoruðum strax. Eftir það fannst mér við vera frekar slakir í fyrri hálfleiknum. Þjálfarinn hefur eitthvað hraunað yfir þá í hálfleik því seinni hálfleikurinn var góður."

Voru augnablik þar sem þú hugsaðir að þú hefðir tekið hlaup og náð á lausu boltanna?

„Já, það er mjög mikið af því þegar maður er uppi í stúku. Maður sér allt plássið sem maður sér ekki þegar maður er inni á vellinum."

Vonast til að spila í lok tímabils
Benoný var í hlífðarskó og á hækjum vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í janúar. „Staðan er fín, ég var í gifsi í tvær vikur og fór úr því í gær. Ég er hægt og rólega byrjaður að labba aftur, strax betri í dag en ég var í gær. Það styttist í að ég losni við hækjurnar. Ég verð í hlífðarskónum í um fjórar vikur. Ég má svitna, gera ökklaæfingar, þarf bara að vera í skónum þegar ég er ekki í því."

„Ég er bjartsýnn á að geta eitthvað spilað í lok tímabils. Eins og staðan er núna erum við ekki að fara beint upp. Ef við náum að fara í umspilið þá ætti ég að vera klár fyrir það, það verður í byrjun maí. Við miðum á það, það er planið. Aðgerðin gekk mjög vel, allir skurðir líta vel út. Þetta var sami ökkli og ég hef verið með í veseni með, meiðst 3-4 á honum. Þegar ég lenti í þessum meiðslum þurfti ég að fara í aðgerð, það var sett gerviliðband og einhverjar skrúfur. Ég er mjög sterkur núna í ökklanum."

„Æfingarnar sem ég er að gera eru mikið upp og niður með ökklann, jafnvægisæfingar, til að byrja með má ég ekki hreyfa hann til hliðar. Þegar líður á ferlið þá fer ég í að hoppa og svo út á gras. Þeir sem eru meiddir fara mikið á þrekhjólið og skíðavélina til að halda sér í góðu formi."


Reynir á hausinn
Þetta hljómar ekkert rosa skemmtilegt, hversu mikið reynir þetta á hausinn?

„Þetta er ógeðslega erfitt að þurfa að mæta á hverjum degi og þurfa að gera það sama í ræktinni, leiðinlegar ökklaæfingar. En þetta er bara partur af þessu, það er ekkert annað í stöðunni en að vera jákvæður."

„Það var áminning í dag að þegar ég kem til baka þá eru leikir eins og þessi gegn Wigan. Þessi stemning (á vellinum) mun ekki breytast held ég og því lengra sem við komumst, nær umspilinu, því betri verður stemningin."

„Ég finn alveg fyrir því (sársauka) þegar ég labba, ég var verri í morgun en núna í kvöld, en þetta verður bara betra."

„Það er pirrandi að geta ekki gert neitt í þessu nema reyna vera jákvæður. Tilfinningin er eins og maður geti komið til baka og sigrað heiminn. Maður þarf bara að mæta alltaf og sinna endurhæfingunni vel."

„Ég passa mig á að halda rútínu, fer nokkuð snemma að sofa og vakna alltaf á sama tíma, það breytist ekki þó að ég sé meiddur."


Stefnan sett upp í Championship
Stockport er í 5. sæti League One, þriðju efstu deildar á Englandi. Liðið tapaði 3-0 gegn Burton í gær en er enn í mjög fínni stöðu í baráttunni um umspilssæti.

„Mér líður eins og við séum að fara ná umspilssæti. Við erum ógeðslega góðir í sumum leikjum, en stundum er þetta kaflaskipt, vorum t.d. mjög lélegir í fyrri hálfleiknum áðan (gegn Wigan) en góðir í seinni. Það er ekkert stress, ég held að ef við náum að halda áfram að ná úrslitum þá verðum við góðir."

„Við stefnum á að fara upp, tapið gegn Bradford í síðustu viku var pínu högg. Við tókum örugglega lengsta fund sem ég hef farið á, tveggja tíma fund, og fórum í gegnum allt, pínu endurstilling. Við sýndum núna gegn Wigan að við getum farið upp."


Setti upp hettuna fyrir leik
Benoný segist ekki mikið vera í Stockport fyrir utan leikdaga, liðið æfir annars staðar, nálægt æfingasvæði Manchester United, en spilar inni í Stockport.

„Þegar ég er að keyra í gegnum borgina, nálægt velinum, þá er maður alltaf stoppaður og maður finnur fyrir því að það er litið upp til manns. Ég var aðeins seinn á völlinn, þurfti að leggja aðeins frá vellinum og ákvað að setja upp hettuna þar sem það var fullt af fólki," segir Benoný léttur.

„Ég bý í Manchester, það er fínt að vera aðeins frá Stockport, ég er svona korter frá miðborg Manchester, líður vel hérna."

„Lífið sem atvinnumaður er geggjað, draumur að geta unnið við þetta."


Erfiðasti parturinn að halda haus
Benoný vinnur við það að hugsa vel um sig, passa upp á að vera í eins góðu formi og hægt er. Er það erfitt í meiðslum?

„Það er klárlega erfiðasti parturinn, sérstaklega þegar maður er meiddur. Ég er búinn að vera á hörku matarplani frá félaginu og æfingaplani frá styrktarþjálfaranum. Við fáum mikla hjálp frá félaginu sem er mjög gott og mikilvægt. Þetta tekur á hausinn, maður þarf að passa sig að fara ekki í nammipokann."

Stórliðin trekkja að
Wigan er félag sem var í úrvalsdeildinni síðast 2013. Það er ekki langt frá Stockport til Wigan og það var nokkuð góð stemning á vellinum. Var þetta hefðbundin stemning?

„Þetta var hefðbundið, oftast er stemningin svona, nema þegar Cardiff kemur, þá er alveg pakkað. Cardiff er risalið, þá vilja fleiri mæta og völlurinn alveg fylltur. Það var líka eiginlega fullt í dag."

Framherjinn er stuðningsmaður Liverpool og hefur kíkt nokkrum sinnum á Anfield í vetur.

„Ég reyni að kíkja þegar ég hef tækifæri, reyni að fara líka á Old Trafford og Etihad."

Toppurinn að skora mikilvæg mörk
Eftir að hafa meiðst í desember kom Benoný til baka og skoraði í tveimur leikjum í röð. Annað markanna var reyndar tekið af honum eftir skoðun. Mörkin voru mikilvæg og þeim vel fagnað.

„Það er klárlega toppurinn að skora mörk sem skipta máli, þegar liðið er búið að vera ströggla, ég fæ að koma inn á og skora sigurmarkið. Það er allan daginn toppurinn."

Benoný var ekki kátur þegar honum var tilkynnt að markið sem hann telur sig hafa skorað var ekki skráð á hann, en hann er harður á því að hann hafi skorað markið sem tryggði stigin þrjú gegn Huddersfield í janúar. Hann skoraði svo sigurmarkið gegn Rotherham í næsta deildarleik á eftir.

Skemmtilegast að fá stóru félögin í heimsókn
Félög sem hafa verið í úrvalsdeildinni eru með lið í deildinni. Félög eins og Cardiff, Bolton, Reading, Luton, Huddersfield og Wigan.

„Fyrir mér er skemmtilegra að fá stór félög í heimsókn, maður sér alveg að það er hiti í leikjunum (tvö rauð spjöld í dag). Með fullri virðingu fyrir minni liðunum, þá eru útileikir þar ekkert skemmtilegustu leikir í heimi. Maður vill alltaf spila við bestu liðin. Það var gaman að skilja Wigan eftir í fallsæti í dag."

Með auðugan eiganda
En hvernig kemur það til að Stockport sé að berjast ofarlega í deildinni?

„Það er raunhæft að fara upp. Klúbburinn hafði verið á mikilli uppleið áður en ég kom, unnu League Two (D-deildina) og svo var planið að fara strax upp úr þessari deild. Á mínu fyrsta tímabili gerðum við betur en búist var við, komumst í umspilið. Eftir það var ekkert aftur snúið, við ætlum okkur að komast upp."

„Eigandinn á skítnóg af pening og er metnaðarfullur. Hann er búinn að lofa mörgum hlutum ef vel gengur og hefur dælt pening í félagið. Ég veit ekki af hverju leikmaður eins og t.d. Oliver Norwood kom til okkar, en það er geggjað að hafa hann, einn besti leikmaður sem ég hef spilað og æft með. Hann er ógeðslega góður í fótbolta og það eru fleiri í liðinu sem eru mjög góðir."


Mark Stott er eigandi Stockport og varð hann vel efnaður í fasteignaviðskiptum, byrjaði á því að selja auglýsingar, reka bar og var með lítið hugbúnaðarfyrirtæki, en færði svo út í fasteignirnar.

Besti miðjumaðurinn í deildinni
Norwood er uppalinn hjá Manchester United og lék bæði með Brighton og Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni. Sérðu mun á honum, hvernig hann hugsar um sig og hvernig hann ber sig á vellinum?

„Já, eftir hverja einustu æfingu fer hann á hjólið í ræktinni og hjólar í 40 mínútur, bara af því bara. Hann vill halda sér í formi. Það er munur sem maður sér á alvöru atvinnumönnum og hinum. Maður sér hvernig hann spilar á vellinum, hann er besti miðjumaðurinn í deildinni."

„Ég hef alveg tekið það til mín, sérstaklega þegar ég er meiddur, að hann sé að æfa á fullu en taki líka hjólið, ég get ekki verið meiddur og líka sleppt hjólinu. Það peppar mann alveg áfram,"
segir Benoný.

Eins og segir hér að ofan er hægt að hlusta á allt viðtalið í spilaranum efst.
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
Stöðutaflan England England 1. deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Lincoln City 38 24 9 5 71 34 +37 81
2 Cardiff City 38 23 7 8 73 41 +32 76
3 Bolton 38 17 15 6 55 38 +17 66
4 Bradford 38 19 8 11 48 42 +6 65
5 Stockport 36 17 8 11 50 47 +3 59
6 Reading 38 15 13 10 57 50 +7 58
6 Cambridge City 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Huddersfield 38 16 9 13 58 48 +10 57
8 Stevenage 37 16 9 12 40 38 +2 57
9 Wycombe 38 15 11 12 55 41 +14 56
10 Plymouth 38 17 5 16 57 53 +4 56
11 Luton 38 15 9 14 51 48 +3 54
12 Barnsley 36 13 11 12 59 59 0 50
13 Peterboro 37 15 4 18 56 51 +5 49
14 Wimbledon 37 14 7 16 48 54 -6 49
15 Mansfield Town 36 11 13 12 43 40 +3 46
16 Leyton Orient 37 13 6 18 53 62 -9 45
17 Doncaster Rovers 37 12 8 17 40 59 -19 44
18 Burton 38 11 10 17 42 53 -11 43
19 Exeter 38 11 9 18 42 50 -8 42
20 Wigan 37 10 12 15 39 51 -12 42
21 Blackpool 38 11 8 19 46 63 -17 41
22 Rotherham 37 9 9 19 35 55 -20 36
23 Northampton 38 9 8 21 32 52 -20 35
24 Port Vale 35 6 10 19 28 49 -21 28
Athugasemdir
banner
banner