Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Sigurjón Rúnarsson (Fram)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir, er séns að fá að sjá þetta viðtal?
Sverrir, er séns að fá að sjá þetta viðtal?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirmyndin.
Fyrirmyndin.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Definition of a bombshell
Definition of a bombshell
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tómas Orri getur vælt
Tómas Orri getur vælt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fá traktorinn í Fram
Fá traktorinn í Fram
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Vuk lofar veislu.
Vuk lofar veislu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurjón Rúnarsson gekk í raðir Fram fyrir rúmu ári síðan frá uppeldisfélaginu Grindavík og stimplaði sig fljótlega inn í liðið í Úlfarsárdalnum. Sigurjón skoraði þrjú mörk í 26 leikjum í Bestu deildinni.

Sigurjón lék sína fyrstu keppnisleiki 2017 og lék á sínum tíma tvo leiki með U19 landsliðinu. Sigurjón er varnarmaður sem sýnir í dag á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Sigurjón Rúnarsson

Gælunafn: Grjóni

Aldur: 25 ára

Hjúskaparstaða: trúlofaður

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Fyrsti byrjunarliðsleikur í Pepsi deildinni 2017 á móti Fjölni. Síðasti leikur tímabilsins þegar ARB99 jafnar markametið á sínum tíma

Uppáhalds drykkur: Hvítur monster by far

Uppáhalds matsölustaður: Hjá höllu

Uppáhalds tölvuleikur: Var mikill Fortnite maður

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: FBI

Uppáhalds tónlistarmaður: mikill Bubba maður

Uppáhalds hlaðvarp: Vitleysan í Blökastinu

Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram og festist oft á tiktok

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: fasteignir.is

Fyndnasti Íslendingurinn: Hjöbbi

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Hello, okey no problem

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Gróttu

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Gylfi Sig

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Rúnar K og Helgi Sig er teymi, svo verð ég að gefa Janko shout

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Vælið í Tómasi Orra er ofarlega þarna

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: JT26

Sætasti sigurinn: 2-3 á móti KR í Laugardalnum í fyrra eftir að hafa sufferað í sennilega 50 mín í seinni hálfleik.

Mestu vonbrigðin: Falla með Grindavík úr efstu 2019

Uppáhalds lið í enska: Chelsea

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Tæki traktorinn Viktor Hauks úr Grindavík alvöru stemningsmaður

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Gef brósa þetta, Eysteinn Rúnars

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Freyr Jónsson í Dallas bað um sterkt shout hér

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: engin break í Maríu Sól Jakobs

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: CR7 auto

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Þessi 8 sekúndna regla á markmenn, dómarar þora takmarkað að flauta á þetta, höndin upp góður leikþáttur

Uppáhalds staður á Íslandi: Grindavík á sinn stað í hjartanu

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Leikur á Costa Blanca Cup á Spáni þar sem við fáum hornspyrnu, ég trítla inn í og ákveð að hlaða í eina alvöru hjólhestaspyrnu sem endar þannig að ég ranka við mér á bekknum eftir að hafa lent á hnakkanum. Hef látið það eiga sig síðan.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Körfubolta

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Copa

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: ensku

Vandræðalegasta augnablik: Sennilega fyrsta viðtalið mitt eftir leik við Keflavík 2018 í Pepsi deildinni, þakka Sverri á .net enn í dag fyrir að hafa ekki haft það í sér að birta það.

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Gæti hlustað á Símon Thasaphong leikmann Njarðvikur og Óliver Berg leikmann Þrótt Vogum æsa í Kristófer Leví markmanni Grindavíkur allt kvöldið.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Viktor hefur mjög gaman af því að pranka menn i klefanum

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Krissi Konn er definition of a bombshell í Love Island, hefur allt til alls.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Er búinn að taka allar seríur af Love Island

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Kennie Cho, hélt hann væri vel þurr Dani áður en ég mætti en eftir að hafa kynnst honum er hann topp gæi

Hverju laugstu síðast: Að ég væri lagður af stað úr vinnunni

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ásgeir seðlabankastjóra hvernig hann nennir að standa í þessum stýrivaxtahækkunum

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Láta sjá sig á vellinum, Vuk Dimi er búinn að lofa sýningu í sumar!
Slapp
Athugasemdir
banner