Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. apríl 2021 19:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maguire jafnaði félagsmet - Missir ekki neitt úr
Harry Maguire.
Harry Maguire.
Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn Harry Maguire hefur reynst gríðarlega mikilvægur fyrir Manchester United frá því hann kom til félagsins frá Leicester fyrir metfé fyrir tveimur árum síðan.

Maguire kostaði um 80 milljónir pund og hann var fljótt gerður að fyrirliða United.

Hann spilar hvern leik - svo gott sem. Tölfræðisíðan OptaJoe segir frá því í dag að Maguire hafi ekki misst af mínútu í ensku úrvalsdeldinni í síðustu 71 leik liðsins.

Hann er búinn að jafna félagsmet Gary Pallister frá 1993 til 1995.

Maguire missir ekki úr mínútu hann fær ekki mikið sumarfrí í sumar því England er að fara að taka þátt á EM í sumar og þar er hann í lykilhlutverki.


Athugasemdir
banner
banner