Fotbolti.net
25.04.23 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Sennilega bara af því að þið fylgist svo ótrúlega vel með leikjunum"

Auglýsing
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar.

Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Besta deild kvenna hefst í dag en Stjörnunni er spáð efsta sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið.

„Það er sennilega bara af því að þið fylgist svo ótrúlega vel með leikjunum að þið sjáið það að við eigum möguleika á að vera í efsta sætinu. Við þökkum traustið," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, þegar honum var tjáð um niðurstöðuna í spánni.
„Þetta er spennandi. Við áttum okkur á því að það er litið á okkur sem topplið en það eru fleiri með í deildinni og vilja vera besta liðið. Þetta verður barátta."

Stjarnan átti gott síðasta tímabil og endaði í öðru sæti. Liðið tekur því þátt í Meistaradeildinni í ár.

„Það er fyrst og fremst hraðinn á því hversu hratt liðið þroskaðist í fyrra á undirbúningstímabilinu og ég tala nú ekki um á keppnistímabilinu. Liðið varð alltaf sterkara og sterkara, spilaði betri fótbolta eftir því sem leið á. Ég hugsa um það þegar ég lít til baka, hversu hratt þetta gekk fyrir sig."

Það hefur gengið ansi vel á undirbúningstímabilinu hjá Stjörnunni í vetur og er liðið búið að taka tvo titla nú þegar. „Við tókum þá ákvörðun að fara ekki í æfingaferð erlendis. Seðlabankastjórinn sendi okkur skilaboð sem við tókum mark á. Við fórum í æfingaferð í júlí, í tíu daga ferð. Sú ferð skildi eftir gríðarlega góðar minningar og það var vel unnið þar."

„Núna erum við að taka bikar heim í tvö skipti. Þetta eru bara undirbúningsmót. Þetta skiptir einhverju máli... þetta hefur ákveðna merkingu fyrir ansi marga."

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan þar sem Kristján ræðir meðal annars um lykilinn að því að vinna vítaspyrnukeppnir. Stjarnan hefur unnið þrjár vítakeppnir á undirbúningstímabilinu og eru miklir sérfræðingar í þeim.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 1. sæti
Hin hliðin - Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan)
Er í draumavinnu hjá KSÍ og spilar á sama tíma í Bestu deildinni
Stjarnan fagnar sigri í Meistarakeppni KSÍ á dögunum.

Stjarnan fagnar sigri í Meistarakeppni KSÍ á dögunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.