Fotbolti.net
25.05.17 - 22:47
Lárus Ingi Magnússon

Bói: Jeppe er stórhættulegur

Auglýsing
Hólmar Örn Rúnarsson.

Hólmar Örn Rúnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Þetta eru vonbrigði,við viljum fá þrjú stig á heimavelli. En þetta var hörkuleikur, Selfoss er með mjög gott lið,\"</i> sagði Hólmar Örn Rúnarsson miðjumaður Keflavíkur eftir 2-2 jafntefli við Selfoss í kvöld.
Keflavík var lengst af að leita mikið að Jeppe Hansen á vellinum, þar til þeir lentu undir þá fóru þeir að sækja á annan hátt.

„Já það getur vel verið. Ég sá það ekki alveg þannig en við leitum mikið að Jeppe því hann er stórhættulegur. Hann var alltaf við það að detta í gegn en það datt ekki alveg hjá honum núna. Það kom smá kraftur í okkur eftir bæði mörkin sem við skoruðum og mér fannst við líklegir en við náðum ekki alveg að fylgja því eftir.\"

Hólmar skoraði sjálfur í leiknum en hvað er langt síðan hann skoraði síðast deildarmark í Keflavík?

„Í Keflavík... ég held að það hafi verið 2015 á móti Val þegar við skítféllum úr Pepsi-deildinni,\" sagði Hólmar sem er að koma inn í liðið aftur eftir meiðsli. Hvernig er staðan á skrokknum?

„Staðan er ágæt. Þetta er alltaf að verða betra og betra. Ég er ekki orðinn 90 mínútna maður og hvað þá 70 mínútna eins og í dag, en með smá klókindum næ ég að spila 70. Þetta mjakast áfram.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.