Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mán 25. maí 2026 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
HM hópur Spánar - Yamal fer með en enginn frá Real Madrid
Yamal fer með á HM.
Yamal fer með á HM.
Mynd: EPA
Williams fékk kallið.
Williams fékk kallið.
Mynd: EPA
Hinn meiddi Lamine Yamal er í HM hópi Spánar en enginn leikmaður Real Madrid er í hópnum, og er það í fyrsta sinn í sögunni. Yamal hefur verið frá vegna meiðsla síðasta mánuðinn og er tæpur fyrir HM. Það vekur hvað mesta athygli að Dean Huijsen og Dani Carvajal fara ekki með á HM.

Nico Williams, sem hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu, er einnig í hópnum og sömu sögu má segja af Mikel Merino sem sneri til baka eftir fjögurra mánaða meiðsli hjá Arsenal í gær. Fermin Lopez, miðjumaður Barcelona, fer hins vegar ekki með þar sem hann fótbrotnaði fyrr í þessum mánuði.

Luisde la Fuente valdi í dag 26 manna hóp sem má sjá hér að neðan. Eric Garcia og Marc Pubill hafa heillað með Barcelona og Atletico Madrid á tímabilinu og eru þeir einu nýliðarnir í hópnum.

Evrópumeistararnir mæta Grænhöfðaeyjum, Sádi-Arabíu og Úrúgvæ í H-riðli keppninnar.

Hópurinn
Markverðir: Unai Simon (Athletic Bilbao), David Raya (Arsenal), Joan Garcia (Barcelona).

Varnarmenn: Marcos Llorente (Atletico Madrid), Marc Pubill (Atletico Madrid), Pedro Porro (Tottenham), Aymeric Laporte (Athletic Bilbao), Eric Garcia (Barcelona), Pau Cubarsi (Barcelona), Marc Cucurella (Chelsea), Alejandro Grimaldo (Bayer Leverkusen).

Miðjumenn: Rodri (Manchester City), Martin Zubimendi (Arsenal), Mikel Merino (Arsenal), Pedri (Barcelona), Gavi (Barcelona), Fabian Ruiz (Paris St-Germain), Alex Baena (Atletico Madrid).

Sóknarmenn: Yeremy Pino (Crystal Palace), Victor Munoz (Osasuna), Mikel Oyarzabal (Real Sociedad), Ferran Torres (Barcelona), Lamine Yamal (Barcelona), Dani Olmo (Barcelona), Nico Williams (Athletic Bilbao), Borja Iglesias (Celta Vigo).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner