25.06.16 - 17:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Víglundur: Mér líður bara ömurlega
Auglýsing

Víglundur var vonsvikinn í leikslok

Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonardóttir

Víglundur Páll Einarsson, þjálfari Fjarðabyggðar, var að vonum svekktur eftir 3-2 tap gegn Þór í dag.
Fjarðabyggð komst í 2-1 og var sú staða þannig alveg fram á 85. mínútu. Þá breyttust hlutirnir og Þórsarar tóku sigurinn.
„Mér líður bara ömurlega, það er bara eitt orð yfir það. Ég er ógeðslega vonsvikinn, ég er pirraður, ég er reiður, það er bara þannig,\" sagði Víglundur eftir leik.
Þór fékk nokkuð umdeilda vítaspyrnu í byrjun leiks og Víglundur var alls ekki sáttur með dóminn.
„Mér fannst dómurinn glórulaus. Maðurinn er löngu dottinn áður en minn maður kemur nálægt honum, annað hann tekur boltann með sér með hendinni. Þetta var víti í mínum augum, annað ætla ég ekki að segja.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.