Fotbolti.net
25.06.26 - 18:26
Kári Snorrason
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Breiðabliks og Víkings: Kiddi Jóns inn hjá Blikum - Óbreytt hjá Víkingum

Kiddi Jóns kemur inn í stað Ívars Arnar.

Kiddi Jóns kemur inn í stað Ívars Arnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik tekur á móti toppliði Víkings á Kópavogsvelli í kvöld. Flautað verður til leiks 19:15 og búið er að opinbera byrjunarliðin.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 4 Víkingur R.
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, gerir eina breytingu á sínu liði frá 3-1 sigri gegn KA í síðustu umferð.

Liðin skildu jöfn að í fyrstu umferð og þá voru Blikar í þriggja hafsenta varnarlínu. Hafsentinn Ívar Örn Árnason er þó í banni í dag og kemur bakvörðurinn Kristinn Jónsson inn í hans stað.

Höskuldur Gunnlaugsson, Kristófer Ingi Kristinsson og Davíð Ingvarsson eru að koma til baka eftir meiðsli og eru á varamannabekk Blika.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, heldur liði sínu óbreyttu frá 5-0 stórsigri á Fram í síðustu umferð.

Erlingur Agnarsson er utan hóps sem og Gunnar Vatnhamar sem er að koma til baka eftir meiðsli.

Byrjunarlið Breiðablik

  • 1. Anton Ari Einarsson (m)
  • 4. Ásgeir Helgi Orrason
  • 6. Arnór Gauti Jónsson
  • 8. Viktor Karl Einarsson
  • 9. Óli Valur Ómarsson
  • 11. Aron Bjarnason
  • 15. Ágúst Orri Þorsteinsson
  • 19. Kristinn Jónsson
  • 21. Viktor Örn Margeirsson
  • 29. Gabríel Snær Hallsson
  • 33. Arnar Bjarki Gunnleifsson

Byrjunarlið Víkingur R.

  • 29. Aron Snær Friðriksson (m)
  • 2. Sveinn Gísli Þorkelsson
  • 4. Peter Oliver Ekroth (f)
  • 9. Helgi Guðjónsson
  • 10. Gylfi Þór Sigurðsson
  • 11. Daníel Hafsteinsson
  • 21. Aron Elís Þrándarson
  • 22. Karl Friðleifur Gunnarsson
  • 25. Valdimar Þór Ingimundarson
  • 28. Elías Már Ómarsson
  • 66. Óskar Borgþórsson
Víkingar léku á als oddi gegn Frömurum.

Víkingar léku á als oddi gegn Frömurum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.