Fotbolti.net
25.07.13 - 22:47
Brynjar Ingi Erluson

Óli Þórðar: Urðum sjálfum okkur og klúbbnum til skammar

Auglýsing
Óli Þórðar: Urðum sjálfum okkur og klúbbnum til skammar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings í fyrstu deildinni, var fyrir miklum vonbrigðum með leikmenn liðsins í 6-1 tapinu á Selfyssingum í dag.
,,Við urðum sjálfum okkur og klúbbnum til skammar í dag, það er bara þannig. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur við Selfoss, þetta er eina liðið sem við höfum tapað fyrir í sumar og áttum harma að hefna, en engu að síður það sem við mættum með í dag var ekki boðlegt,\" sagði Óli eftir leikinn.

,,Hugarfarið var ekki rétt og við skiljum allt eftir í Reykjavík sem hefur gert okkur góða hingað til. Því miður og synd að keyra allan þennan veg í stað þess að mæta hér og standa okkur eins og við gerðum.\"

,,Það er hreinlega spurning og eitthvað sem við þurfum að finna út úr. Ég gat ekki séð það að þeir voru mættir hér að spila fótbolta, það verður að koma í ljós og undir þeim sjálfum komið að sýna úr hverju þeir eru gerðir,\"
sagði hann ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.