Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. júlí 2021 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Lukaku ekki til sölu: Hann er ósnertanlegur í sumar
Romelu Lukaku er ekki á förum
Romelu Lukaku er ekki á förum
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku fer ekki frá ítalska félaginu Inter í sumar en Giuseppe Marotta, framkvæmdastjóri Inter, staðfestir þetta við Mediaset í dag.

Lukaku hefur skorað 47 mörk og lagt upp 12 í 72 leikjum með Inter frá því hann kom frá Manchester United árið 2019.

Hann hélt áfram góðu gengi sínu á Evrópumótinu í sumar þar sem hann gerði fjögur mörk fyrir Belgíu.

Inter hefur verið í erfiðleikum með reksturinn og þurft að selja lykilmenn en Achraf Hakimi var seldur til Paris Saint-Germain fyrir um það bil 60 milljónir evra og þá fór Matteo Politano til Napoli fyrir 19 milljónir evra.

Fleiri leikmenn gætu yfirgefið félagið en Lukaku er þó ekki til sölu.

„Romelu Lukaku er ósnertanlegur í sumar. Hann gegnir lykilhlutverki hjá Inter," sagði Marotta við Mediaset.
Athugasemdir
banner
banner