Albert: Flottur karakter að svekkja sig ekki á einhverju marki
Auglýsing

Albert Brynjar Ingason gerði þrennu fyrir Fylki í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Albert Brynjar Ingason, framherji Fylkis í Inkasso-deildinni, var auðvitað ánægður með 5-1 sigur liðsins á Fram í kvöld. Fylkir er í öðru sæti með 36 stig eftir leikinn.
Fylkismenn lentu undir gegn Fram í kvöld eftir fimm mínútna leik en liðið tók við sér og jafnaði leikinn fjórtán mínútum síðar. Vélin fór þá í gang og áður en flautað var til hálfleiks var staðan 4-1. Albert fullkomnaði síðan þrennu sína með marki úr víti þegar ellefu mínútur voru búnar af þeim síðari.
„Frábær leikur fannst mér. Það er flottur karakter að svekkja sig ekki á einhverju marki og bara halda áfram,\" sagði Albert við Fótbolta.net.
„Mér fannst við koma vel stemmdir inn í leikinn en lítið sem við gátum gert í þessu marki. Við vissum af manninum en skallinn var frábær. Við bregðumst samt rétt við og fyllilega verðskuldaður sigur.\"
Eins og áður segir gerði Albert þrennu í leiknum. Hann er kominn með 13 mörk í sumar.
„Ég var mjög ánægður með það. Fyrst og fremst var þetta að ná þremur stigum.\"
„Við erum búnir að vera peppaðir fyrir þetta í allt sumar. Tveir skítaleikir, einn á móti Leikni Fáskrúðsfirði en við erum búnir að núllstilla okkur,\" sagði hann ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.