Adam Örn enn fjarverandi hjá Gornik Z.
FC Astana 5 - 0 Taraz
Astana tók á móti fallbaráttuliði Taraz í Kasakstan í dag. Skemmst er frá því að segja að Astan gjörsigraði Taraz, 5-0, og heldur sér við toppinn í deildinni. Toppbaráttan er spennandi en fjögur lið eru í baráttunni um titilinn í Kasakstan. Astana er tveimur stigum á eftir toppliði Tobol en á leik til góða.
Rúnar Már Sigurjónsson byrjaði á bekknum hjá Astana og lék síðasta hálftíman eða svo. Rúnar Már lék allan leikinn er Astana lagði BATE á fimmtudaginn í forkeppni Evrópudeildarinnar. Þar skoraði Rúnar og lagði eitt mark upp að auki.

Seinni leikur BATE og Astana fer fram á fimmtudag.
Adam ekki með í góðum sigri Gornik Z.
Gornik Z. sem Adam Örn Arnarson leikur með í Póllandi, vann í dag góðan 3-0 sigur á Korona Kielce í 6. umferð pólsku Ekstraklasa.
Adam Örn hefur ekki leikið með Gornik í fyrstu umferðum deildarinnar. Liðið er tíu stig eftir umferðirnar sex.
Gornik Z. 3 - 0 Korona Kielce
Athugasemdir