Fotbolti.net
13.10.26 - 15:28
Elvar Geir Magnússon

Goretzka í hóp hjá Villa og gæti spilað sinn fyrsta leik

Ruggeri frá næstu vikurnar

Goretzka gekk í raðir Villa frá Bayern á frjálsri sölu.

Goretzka gekk í raðir Villa frá Bayern á frjálsri sölu.

Canon

Mynd: Aston Villa

Leon Goretzka gekk til liðs við Aston Villa á frjálsri sölu í sumar eftir að samningur hans við Bayern Munchen rann út. Vegna meiðsla hefur Þjóðverjinn enn ekki leikið fyrir Villa.

Það gæti þó breyst annað kvöld þegar Villa tekur á móti Fenerbahce í Meistaradeildinni en Unai Emery, stjóri Villa, hefur staðfest að þessi 31 árs miðjumaður verði í hópnum.
Ítalski bakvörðurinn Matteo Ruggeri er hinsvegar meiddur en hann fór af velli í 2-0 sigrinum gegn Brentford.

„Við vitum ekki nákvæmlega hversu lengi hann verður frá, en það verður lengur en í mánuð. Við þurfum að finna lausnir því Ian Maatsen er ekki enn tilbúinn í slaginn," segir Emery.

Amadou Onana og Modou Keba Cisse eru mættir aftur til æfinga með Villa og stutt í að þeir snúi aftur út á völlinn.

Meistaradeildin

#LiðLmunStig
1PSG3+99
2Aston Villa3+99
3Liverpool3+59
4Real Madrid3+59
5Betis3+39
6Stuttgart3+57
7Arsenal3+47
8Barcelona3+56
9Como3+56
10Man City3+46
11Club Brugge3+36
12Sporting3+36
13Dortmund3+16
14Bayern3+55
15Roma3+34
16Atletico Madrid3+14
17Shakhtar D3+14
18PSV304
19Villarreal303
20Man Utd3-13
21Inter3-13
22Napoli3-23
23Galatasaray3-33
24LASK Linz3-33
25Sabah FK3-33
26Feyenoord3-43
27Lens3-43
28Bodö/Glimt3-53
29AEK3-53
30RB Leipzig3-53
31Fenerbahce3-62
32Slavia Prag3-31
33Viking FK3-41
34Porto3-40
35Lille3-60
36Slovan3-120
Matteo Ruggeri (lengst til vinstri).

Matteo Ruggeri (lengst til vinstri).

Canon

Mynd: Aston Villa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.