Fotbolti.net
13.10.26 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

„Dularfullt hvarf“ Bernardo Silva

 Bernardo Silva.

Bernardo Silva.

Canon

Mynd: EPA

Bernardo Silva hefur lítið sem ekkert fengið að spila fyrir Real Madrid. Þessi 32 ára leikmaður hefur aðeins leikið 15 mínútur samtals síðasta mánuðinn, átta með Real Madrid og sjö með portúgalska landsliðinu.

Fyrir tímabilið talaði Mourinho um að Silva hefði komið úr sumarfríi í lélegu standi og þessi frábæri leikmaður hefur ekki fengið mikinn spiltíma að undanförnu. Hann virðist hafa færst aftar í goggunarröðinni.
Mourinho: Bernardo Silva nennti ekki að hreyfa sig í fríinu
TENGT EFNI

Mourinho: Bernardo Silva nennti ekki að hreyfa sig í fríinu

Silva byrjaði í þremur af fyrstu fimm deildarleikjum Madrídarliðsins en hefur verið geymdur á bekknum í næstu þremur, þar sem hann kom aðeins inn á seint gegn Atletico Madrid.

Federico Valverde, Aurelien Tchouameni og Eduardo Camavinga eru allir valdir fram yfir hann í leikkerfi Madrid, sem samanstendur af tveimur varnartengiliðum.

„Bernardo Silva er mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur. En þegar hann fer í frí þá vill hann aftengja sig frá öllu. Hann hreyfir sig ekki neitt. Líkamlegt ástand hans er því ekki nægilega gott og hann þarf að bæta það," sagði Mourinho í ágúst.

En spænskir fjölmiðlar telja að líkamlegt Bernardo Silva sé ekki ástæðan fyrir því að hann sé úti í kuldanum, sérstklega í ljósi þess að hann spilaði fyrstu leiki tímabilsins.

„Hann er horfinn, aðeins 15 mínútur samtals fyrir Real Madrid og Portúgal á síðustu 30 dögum. Óvænt og dularfullt mál. Þetta er ráðgáta," er skrifað af AS.

Madrídarliðið er í fjórða sæti deildarinnar, þegar komið sex stigum á eftir Barcelona sem er með fullt hús.
„Dularfullt hvarf“ Bernardo Silva
Canon

Mynd: Real Madrid

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.