13.10.26 - 17:15
Kári Snorrason
Þjálfari Loga rekinn eftir slaka byrjun

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Thorsten Fink hefur verið rekinn úr starfi sem þjálfari Samsunspor í Tyrklandi.
Gengi liðsins hefur verið langt undir væntingum í upphafi tímabils. Sjö umferðir eru búnar af tyrknesku deildinni og er liðið aðeins með fjögur stig.
Samsunspor er í 17. sæti, sem er næst neðsta sæti deildarinnar, en liðið endaði í 7. sæti á síðasta tímabili.

Fink tók við liðinu undir lok síðasta tímabils en hann er eflaust þekktastur fyrir tímann sinn hjá Bayern Munchen sem leikmaður.
Landsliðsmaðurinn Logi Tómasson er leikmaður Samsunspor og hefur hann verið fastamaður í liðinu og hefur hann byrjað alla leiki liðsins á tímabilinu.