Fotbolti.net
25.09.26 - 13:26
Elvar Geir Magnússon

Arnar um umtalað viðtal við Albert: Flott hjá honum að tjá sig

Albert Guðmundsson.

Albert Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson fór í viðtal við RÚV í gær þar sem hann tjáði sig um erfitt samband sitt við Arnar Þór Viðarsson, fyrrum landsliðsþjálfara.

Albert og Arnar Þór náðu ekki vel saman og Albert viðurkenndi að hafa fagnað þegar KSÍ ákvað að reka hann í lok mars 2023.

Viðtalið kom við sögu á fréttamannafundi í dag og Arnar Gunnlaugsson, núverandi landsliðsþjálfari, var spurður út í hvernig Albert hefði komið inn í hópinn eftir að hann tók við stjórnartaumunum?
„Ekkert nema gott um það að segja. Hann er mikill fagmaður og örugglega misskilinn að mörgu leyti. Hann leggur hart að sér, hugsar vel um sig varðandi svefn og næringu. Við þekkjum öll hans hæfileika. Ég hef yfir engu að kvarta varðandi hans framgöngu í mínum hópi," svaraði Arnar Gunnlaugs sem var ánægður með að Albert talaði hreint út í viðtalinu.

„Þegar ég er spurður spurninga þá vil ég tjá mig af hreinskilni og ég fagna því að leikmenn geti tjáð sig. Ég styð þá í því að tjá sig. Mér fannst það flott hjá honum að tjá sig og vera ekkert að fela sig með það," segir Arnar Gunnlaugsson

Albert fagnaði brottrekstrinum
„Tíminn með honum var ekkert frábær," sagði Albert í umræddu viðtali sem sýnt var í fréttum RÚV í gær en hann ákvað að spila ekki aftur fyrir landsliðið á meðan Arnar Þór Viðarsson var landsliðsþjálfari.

„Ég vissi að hann væri bara að skjóta sjálfan sig í fótinn og hans dagar væru taldir. Ég var alltaf að fara að vera lengur í landsliðinu en hann sem þjálfari. En auðvitað var sárt að missa af næstu einu, tveimur árum með honum. Fullt af góðum leikjum sem ég missti af."

Aðspurður hvort hann hafi fagnað brottrekstri Arnars Þórs hugsaði Albert sig aðeins um og svaraði loks: „Já, ég ætla ekkert að skafa af því. Það voru góðar fréttir fyrir mig.“



Albert skýtur föstum skotum á Arnar Viðars: Hann gróf sína eigin gröf, hvíl í friði
TENGT EFNI

Albert skýtur föstum skotum á Arnar Viðars: Hann gróf sína eigin gröf, hvíl í friði

Heimild: Viðtal RÚV við Albert

Arnar Gunnlaugsson núverandi landsliðsþjálfari.

Arnar Gunnlaugsson núverandi landsliðsþjálfari.

Canon

Mynd: EPA

Arnar Þór Viðarsson, fyrrum landsliðsþjálfari.

Arnar Þór Viðarsson, fyrrum landsliðsþjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.