25.09.26 - 08:00
Elvar Geir Magnússon
Chelsea fremst í kapphlaupinu um Scott

Alex Scott er eftirsóttur.

Mynd: EPA

Scalvini fagnar.

Mynd: EPA

Alex Scott er eftirsóttur.

Mynd: EPA

Þjóðadeildin fór í gang og heldur áfram um helgina en meðal leikja er heimaleikur Íslands gegn Eistlandi sem verður á Laugardalsvelli á morgun. En hér er slúðurpakki dagsins til að koma ykkur inn í föstudaginn!
Chelsea mun leiða baráttuna ef enski miðjumaðurinn Alex Scott (23) hjá Bournemouth verður fáanlegur í janúar. (Mail)
Bayern München íhugar að reyna að fá sóknarmanninn Dani Olmo (28) frá Barcelona í janúar en þessi spænski heimsmeistari er metinn á um 60 milljónir punda. (Sky Sports)
Enski miðjumaðurinn Jude Bellingham (23) mun framlengja samning sinn við Real Madrid og hefur engan áhuga á að ganga til liðs við Manchester City. (Fichajes)
Tottenham, Newcastle og Chelsea sýna öll áhuga á ítalska varnarmanninum Giorgio Scalvini (22) sem leikur með Atalanta. (Caught Offside)
Aston Villa er ekki með ákvæði um að geta rift lánssamningi Alejandro Garnacho (22) frá Chelsea í janúarglugganum. Samningurinn er út tímabilið. (Telegraph)
Liverpool íhugar að kalla enska miðjumanninn Tyler Morton (23) aftur til félagsins úr láni hjá Lyon en Nottingham Forest, Crystal Palace og Brighton fylgjast með honum. (Teamtalk)
Chelsea er eitt af fjórum félögum í ensku úrvalsdeildinni sem fylgjast grannt með úsbeska varnarmanninum Abdukodir Khusanov (22) hjá Manchester City. (Caught Offside)
Juventus gæti endurvakið áhuga sinn á brasilíska markverðinum Alisson (33) en framtíð hans hjá Liverpool er í óvissu. (Football Italia)
Barcelona þarf að selja leikmenn í janúar til að fjármagna ný kaup, en ítalski varnarmaðurinn Alessandro Bastoni (27) hjá Inter er á óskalista félagsins. (Fichajes)