Fotbolti.net
25.09.26 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

Hákon um öfluga byrjun Brentford: Markmiðið er Evrópa

Hákon Rafn Valdimarsson.

Hákon Rafn Valdimarsson.

Canon

Mynd: Brentford

Brentford hefur farið mjög vel af stað í ensku úrvalsdeildinni og er í fjórða sæti á sínu öðru tímabili undir stjórn Keith Andrews. Liðið er með tvo sigra og þrjú jafntefli, hefur enn ekki tapað leik.

Stuðningsmenn Brentford láta sig dreyma um Evrópu og miðað við öfluga byrjun er það raunhæft.

Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Rafn Valdimarsson er varamarkvörður Brentford og ræddi við Fótbolta.net um öfluga byrjun liðsins á tímabilinu. Hákon hefur spilað bikarleiki liðsins en var ekki með í deildabikarleik gegn Reading rétt fyrir gluggalok vegna bakmeisla.
Tilbúinn ef tækifærið kemur
„Það var svekkjandi að missa af þeim leik. Ég var búinn að vera tvær vikur að koma mér í gegnum þetta og vera á bekknum í deildinni, ég þurfti að taka ákvörðun því þetta hefði getað versnað ef ég hefði haldið áfram. Það var leiðinlegt að missa af þessum leik en gott að liðið vann og við erum komnir áfram," segir Hákon. En hvernig er staða hans hjá félaginu?

„Hún er svipuð og hún hefur verið. Ég er ekki að spila í deildinni en er veita góða samkeppni og hef verið að fá að spila bikarleikina eins og staðan er. Ég er að berjast fyrir sætinu, aðalatriðið er að vera klár og æfa vel. Ef tækifærið kemur verð ég að vera tilbúinn."

Á mjög góðum stað
Brentford heldur áfram að koma fótboltaáhugafólki á óvart en liðið hefur sýnt gríðarlegan stöðugleika síðustu ár, er sífellt að verða betra og sýnir skynsemi í öllum aðgerðum.

„Við erum á mjög góðum stað, áttum frábært undirbúningstímabil. Svo byrjuðum við deildina frábærlega með sigri á Tottenham. Við erum ekki búnir að tapa og áttum góðan leik rétt fyrir landsleikjahlé. Við höfum fengið þrjá til fjóra nýja leikmenn sem hafa komið mjög vel inn. Markmiðið er að ná í Evrópukeppni," segir Hákon.

Hann segir það góða tilfinningu að vera hjá félagi með svona mikinn stöðugleika og fagmennsku, það bjóði upp á gott umhverfi til að bæta sig.

„Mjög þægilegt. Frábært lið, frábærir leikmenn. Æfingarnar eru mjög góðar. Standardinn er hár, flestir bæta sig í þessu umhverfi," segir Hákon sem er klár í komandi verkefni með Íslandi.
Á æfingu með íslenska landsliðinu

Á æfingu með íslenska landsliðinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hákon Rafn: Ég er sem betur fer klár

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.