25.09.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jakob Snær framlengir við KA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kantmaðurinn Jakob Snær Árnason er búinn að framlengja samning sinn við KA og mun leika fyrir félagið næstu þrjú keppnistímabil.
Samningurinn gildir út 2029 en Jakob hefur verið hjá KA síðastliðin sex ár eftir að hafa alist upp hjá erkifjendunum í Þór.
„Jakob lék sinn 100. leik fyrir KA í deild, bikar og evrópu í sumar en alls eru leikirnir orðnir 117 talsins og mörkin 20. Nú er ljóst að leikirnir verða töluvert fleiri og erum við afar spennt fyrir því að halda þessum öfluga kappa innan okkar raða," segir meðal annars í tilkynningu frá KA, sem er í harðri fallbaráttu á lokametrum deildartímabilsins í Bestu deildinni.