25.09.26 - 16:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Líklegt - og draumabyrjunarlið Íslands á morgun

Orri Steinn lék síðast keppnislandsleik fyrir einu og hálfu ári.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við búumst við því að Andri Lucas spili með Orra Steini í fremstu línu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stefán Teitur er kostur í vörninni og á miðjunni.

Mynd: EPA

Daníel Leó er lykilmaður í vörninni.

Klukkan 16:00 á morgun tekur Ísland á móti Eistlandi á Laugardalsvelli í Þjóðadeildinni. Um fyrsta leik af fjórum í landsleikjaglugganum er að ræða.
Þeir Andri Lucas Guðjohnsen og Orri Steinn Óskarsson hafa leikið vel saman með landsliðinu og er búist við því að landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson stilli Andra Lucasi með landsliðsfyrirliðanum í fremstu línu.

Albert Guðmundsson hefur verið í hlutverki á vinstri vængnum og komið inn á völlinn í sóknarleiknum og Jón Dagur haldið sig hægra megin á vellinum.
Skagamennirnir Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson verða að öllum líkindum á miðsvæðinu.
Elías Rafn Ólafsson er ekki með í þessum leikjum og er baráttan á milli þeirra Rúnars Alex Rúnarssonar og Hákonar Rafns Valdimarssonar um markmannsstöðuna og við búumst við því að Hákon verði í markinu.
Hægri bakvörðurinn verður að öllum líkindum Guðlaugur Victor Pálsson. Við búumst svo við því að Daníel Leó Grétarsson verði í hjarta varnarinnar en hver verður með honum er ákveðið spurningarmerki. Við spáum því að Hörður Björgvin Magnússon verði með Daníel en þeir Stefán Teitur Þórðarson, Aron Einar Gunnarsson og Guðlaugur Victor koma sömuleiðis til greina.
Við búumst þá við því að Mikael Egill Ellertsson fái kallið í vinstri bakverðinum fram yfir Loga Tómasson en þeir eru nokkuð jafnir í þeirri í baráttu.

Fréttamaður setti sömuleiðis upp smá draumóra lið fyrir leikinn á morgun ef Arnar vildi fara alla leið í sóknaruppstillingu. Þá væru báðir bakverðir sóknarsinnaðir, Stefán Teitur í miðverðinum, Gylfi Þór með Ísaki sem sitjandi miðjumaður og Hákoni ýtt enn framar á völlinn.
Byrjunarliðin verða tilkynnt rúmlega klukkutíma fyrir leikinn á morgun.
Skagamennirnir Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson verða að öllum líkindum á miðsvæðinu.
Elías Rafn Ólafsson er ekki með í þessum leikjum og er baráttan á milli þeirra Rúnars Alex Rúnarssonar og Hákonar Rafns Valdimarssonar um markmannsstöðuna og við búumst við því að Hákon verði í markinu.
Hægri bakvörðurinn verður að öllum líkindum Guðlaugur Victor Pálsson. Við búumst svo við því að Daníel Leó Grétarsson verði í hjarta varnarinnar en hver verður með honum er ákveðið spurningarmerki. Við spáum því að Hörður Björgvin Magnússon verði með Daníel en þeir Stefán Teitur Þórðarson, Aron Einar Gunnarsson og Guðlaugur Victor koma sömuleiðis til greina.
Við búumst þá við því að Mikael Egill Ellertsson fái kallið í vinstri bakverðinum fram yfir Loga Tómasson en þeir eru nokkuð jafnir í þeirri í baráttu.

Fréttamaður setti sömuleiðis upp smá draumóra lið fyrir leikinn á morgun ef Arnar vildi fara alla leið í sóknaruppstillingu. Þá væru báðir bakverðir sóknarsinnaðir, Stefán Teitur í miðverðinum, Gylfi Þór með Ísaki sem sitjandi miðjumaður og Hákoni ýtt enn framar á völlinn.
Byrjunarliðin verða tilkynnt rúmlega klukkutíma fyrir leikinn á morgun.

Við búumst við því að Andri Lucas spili með Orra Steini í fremstu línu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stefán Teitur er kostur í vörninni og á miðjunni.

Mynd: EPA

Daníel Leó er lykilmaður í vörninni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke