Fotbolti.net
25.09.26 - 20:55
Magnús Atlason

Matthías um falldrauginn: Svona er staðan

Auglýsing
Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals.

Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Valur og Víkingur gerðu 1-1 jafntefli í fallbaráttuslag á Hlíðarenda í kvöld. Fótbolti.net náði tali af Matthíasi Guðmundssyni, þjálfara Vals, eftir leik.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Víkingur R.
"Spennufall. Náttúrulega ótruleg spenna og stress en alveg hrikalega skemmtilegt. Mér fannst við mjög góðar í dag. Sárt að klára ekki leikinn en þetta voru tvö lið að selja sig mjög dýrt."

Sagði Matti eftir leikinn. Kvennalið Vals er eina liðið á Íslandi sem hefur alltaf verið í efstu deild. Það gæti breyst í lokaumferðinni. "Ertu meðvitaður um stöðuna?"

"Jájá, það er langt síðan ég var meðvitaður um það. Þetta er staðan. Það er ennþá möguleiki og við höfum séð annað eins í knattspyrnusögunni að eitthvað gerist á lokadegi, lokasekúndum. Hvort sem það sé titill í húfi eða eitthvað annað."

Síðasti leikur tímabilsins er gegn Fram sem tryggði sæti sitt í Bestu deildinni nú í kvöld með sigri á Þór/KA. Valur þarf að sigra Fram og treysta á jafntefli í leik Víkings og Þórs/KA. "Hvernig leggst sá leikur í þig og heldurðu að það muni hjálpa ykkur að Fram sé ekki að spila upp á neitt?"

"Ég pæli ekkert í því. Ég pæli bara í okkur, okkur hefur gengið skelfilega með Fram. Í fyrsta lagi verðum við að svara því að okkur hefur ekki gengið vel með Fram liðið. Við þurfum bara að gera okkar, það er númer eitt, tvö og þrjú að byrja á því, og vonandi fellur hitt fyrir okkur."

Horfðu á viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.