Fotbolti.net
25.09.26 - 21:21
Ívan Guðjón Baldursson

Mazraoui og Jackson á skotskónum - Markalaust í Egyptalandi

Mazraoui og Jackson á skotskónum - Markalaust í Egyptalandi
Canon

Mynd: EPA

Í dag var nóg um að vera í forkeppni fyrir Afríkukeppnina sem fer fram næsta sumar.
Noussair Mazraoui skoraði áður en Bilal El Khannouss lagði upp seinna markið í 2-0 sigri Marokkó gegn Gabon. Hinn bráðefnilegi Ayyoub Bouaddi var í byrjunarliðinu.

Nicolas Jackson setti þá eina mark Senegal í jafntefli á útivelli gegn Mósambík. Jackson kom Senegölum yfir á 32. mínútu en heimamenn jöfnuðu og spiluðu frábærlega í seinni hálfleik.

Senegalar voru talsvert sterkari aðilinn fyrir leikhlé og geta verið svekktir með færin sem fóru forgörðum. Margir úrvalsdeildarleikmenn voru í byrjunarliði Senegal sem er líka með Súdan og Eþíópíu í riðli.

Mohamed Salah og Omar Marmoush tókst þá ekki að skora í markalausu jafntefli hjá Egyptalandi gegn Angólu en Malaví og Suður-Súdan eru einnig með í riðlinum.

Úrvalsdeildarleikmennirnir Alex Iwobi og Semi Ajayi lögðu upp mörkin í endurkomusigri Nígeríu gegn Madagaskar og fóru ýmsir aðrir leikir fram.

Malí sigraði 3-1 gegn Grænhöfðaeyjum og báru Tógó, Alsír, Rúanda, Malaví, Gambía, Níger, Gínea-Bissá og Súdan einnig sigra úr býtum.

Mósambík 1 - 1 Senegal

Egyptaland 0 - 0 Angóla

Nígería 2 - 1 Madagaskar

Marokkó 2 - 0 Gabon

Malí 3 - 1 Grænhöfðaeyjar

Súdan 1 - 0 Eþíópía

Tansanía 0 - 2 Gínea-Bissá

Níger 2 - 1 Lesótó

Gambía 2 - 1 Sómalía

Malaví 2 - 1 Suður-Súdan

Rúanda 3 - 1 Líbería

Tógó 1 - 0 Búrúndí

Alsír 3 - 1 Sambía

Búrkína Fasó 1 - 1 Benín
Mazraoui og Jackson á skotskónum - Markalaust í Egyptalandi
Canon

Mynd: EPA

Mazraoui og Jackson á skotskónum - Markalaust í Egyptalandi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.