Fotbolti.net
25.09.26 - 22:11
Ívan Guðjón Baldursson

Mbappé sendur heim vegna meiðsla

Mbappé sendur heim vegna meiðsla
Canon

Mynd: EPA

Franski sóknarmaðurinn og landsliðsfyrirliðinn Kylian Mbappé skoraði eina mark leiksins er Frakkar rétt mörðu Tyrki í Þjóðadeildinni í kvöld.
Þjóðadeildin: Belgía vann á Ítalíu - Naumur sigur Frakklands
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Belgía vann á Ítalíu - Naumur sigur Frakklands

Mbappé skoraði snemma í síðari hálfleik en þurfti að fara af velli skömmu síðar vegna hnémeiðsla.

Mbappé leit út fyrir að vera sárþjáður og mun hann ekki koma meira við sögu með franska landsliðinu í fyrsta landsleikjahlénu undir stjórn Zinedine Zidane.

Hann snýr aftur til Spánar þar sem læknateymi Real Madrid mun hafa gætur á honum. Ekki er ljóst hversu lengi hann verður frá fyrr en hann gengst undir frekari rannsóknir.

Mbappé er 27 ára gamall og er búinn að skora 9 mörk í 9 leikjum á tímabilinu.
Mbappé sendur heim vegna meiðsla
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.