Fotbolti.net
25.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Sándor framlengir við HK: „Einn besti markmannsþjálfari landsins"

Sándor framlengir við HK: „Einn besti markmannsþjálfari landsins"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Sándor Matus er búinn að framlengja samning sinn sem markmannsþjálfari hjá HK.
Sándor er 49 ára gamall og lék lengi vel markvörður hjá Akureyrarliðunum KA og Þór og kom einnig við sögu í leikjum með Dalvík/Reyni, Einherja og ÍH.

Sándor hefur komið að markmannsþjálfun í yngri flokkum HK og meistaraflokki karla síðan 2018 og er mikil ánægja með starf hans.

„Sandor er einn besti markmannsþjálfari landsins, ef ekki sá besti og hefur verið mikill fengur fyrir félagið síðan hann kom hingað 2018. Það er mikil ánægja með hans störf. Efniviður markmanna í HK er mikill og góður og er það Sandor að þakka," segir Sigurjón Hallgrímsson formaður knattspyrnudeildar HK.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.