25.09.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sindri Þór með lausan samning eftir fallið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík féll úr Lengjudeildinni í haust og ljóst að leikmenn gætu haldið annað í vetur. Á meðal þeirra er Sindri Þór Guðmundsson sem er með lausan samning eftir fallið.
Sindri er fjölhæfur leikmaður, fæddur 1997, sem gekk í raðir Grindavíkur frá Reyni Sandgerði 2024, en þar á undan hafði hann leikið með Keflavík í Bestu deildinni. Hann skoraði þrjú mörk í 20 leikjum 2025 og spilaði í gegnum allt tímabilið kviðslitinn.

Hann meiddist illa á nýliðnu tímabili eftir harða tæklingu gegn Vestra í fyrstu umferð en kom til baka og kom alls við sögu í 13 deildarleikjum og spilaði í lokaleiknum þrátt fyrir rifbeinsbrot.
Alls á hann að baki tæplega 90 leiki í efstu deild og rúmlega þann leikfjafjölda í næstefstu deild.
Samkvæmt heimasíðu KSÍ eru fimm aðrir leikmenn með lausan samning við Grindavík. Það eru þeir Arnór Gauti Úlfarsson, Lárus Orri Ólafsson, Rafael Victor, Aron Skúli Brynjarsson og Ibrahima Camara. Arnar Breki Gunnarsson var á láni frá ÍBV.