Fotbolti.net
25.09.26 - 12:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sjáðu frábært aukaspyrnumark og Rayan bjarga Brössum í vináttulandsleik

Nestory Irankunda fagnaði markinu með tilþrifum.

Nestory Irankunda fagnaði markinu með tilþrifum.

Canon

Mynd: EPA

Ástralía 1 - 1 Brasilía
1-0 Nestory Irankunda ('68 )
1-1 Rayan ('90 )
Ástralía tók á móti Brasilíu í vináttulandsleik í Townsville í dag.

Estevao kom boltanum í ástralska netið í lok fyrri hálfleiks en eftir skoðun í VAR var markið dæmt af vegna þess að Bruno Guimaraes braut af sér í aðdragandanum.

Á 68. mínútu kom Nestory Irankunda, leikmaður Sporting, heimamönnum yfir með marki beint úr aukaspyrnu og allt stefndi í heimasigur þar til á fimmtu mínútu uppbótartíma þegar Rayan, kantmaður Bournemouth, jafnaði fyrir Brassa með skalla eftir hornspyrnu frá Raphinha.

Byrjunarlið Brasilíu: Souza; Matheuzinho, Marquinhos, Reis, Douglas Santos; Guimaraes, Danilo Santos, Estevao, Raphinha, Vinicius; Endrick.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.